Byrjað að framleiða Audi Q4 e
- Bíllinn verður grunngerð rafbíla frá Audi
- Þetta er fyrsti rafbíllinn frá Audi sem er miðaður á fjöldamarkað
Nýjasti rafknúni bíllinn frá Audi, Q4 e-tron sportjeppinn sem aðeins notar rafhlöður, er kominn í framleiðslu í rafbílaverksmiðju Volkswagen Group í Zwickau í Þýskalandi.
Q4 e-tron gerðin verður minnsti rafbíll Audi og fyrsti rafbíll vörumerkisins sem er miðaður að almennum fjöldamarkaði.
Rafbíllinn verður kynntur um miðjan apríl og kemur á markað í Evrópu í sumar, sagði Audi í yfirlýsingu.
Q4 e-tron er smíðaur á MEB grunni Volkswagen Group. Audi mun einnig selja útgáfu í coupé-stíl sem kallast Q4 Sportback e-tron og verður kynnt samhliða hinum bílnum.
Q4 Sportback e-tron mun fara í sölu með haustinu.
Báðar gerðirnar verða með 82 kílóvattstunda rafhlöðupakka og tvo rafmótora fyrir samanlögð afköst 302 hestöfl og 450 km drægni á rafhlöðunum.

Audi hefur áður fjallað um plássið í Q4 e-tron, þar á meðal 520 lítra farangursrými. Bíllinn verður 4590 mm lengd, næstum það sama og MEB systkini hans, VW ID4. Q4 Sportback e-tron er 10 mm lengri en Q4 e-tron og 10 mm lægri.
Audi sýndi Q4 e-tron fyrst sem hugmyndabíl árið 2019 og ekki er búist við að hönnun framleiðslubílsins verði mikið öðruvísi. Hugmyndin einkenndist af áberandi grilli, stórum felgum og áberandi hjólskálum sem gefa yfirbyggingunni meira formað yfirbragð en má sjá á VW ID4 frá VW.
Q4 e-tron er fyrsti rafbíllinn utan VW sem fer í framleiðslu í verksmiðjunni Zwickau og hann er smíðaður á sömu línu og ID4. Q4 Sportback e-tron verður einnig smíðaður í verksmiðjunni.
Verksmiðjan framleiðir einnig ID3 og mun síðar á þessu ári hefja framleiðslu á Cupra Born, litla rafbílnum, sem einnig notar MEB-grunninn vettvanginn.
„Samstarf krossmerkja í Zwickau sýnir enn og aftur þá gífurlegu samlegðar möguleika sem við njótum með Volkswagen Group“. Sagði framleiðslustjóri Audi, Peter Koessler, í yfirlýsingunni.
Audi sagðist hafa útvegað pressuverkfæri til að búa til boddýhluta Q4 e-tron úr eigin verksmiðju.
„Með svipmikilli hönnun sinni býður Audi Q4 e-tron upp gífurlegar áskoranir þegar kemur að nákvæmni og fullkomnun yfirborðs,“ sagði Audi. Fyrirtækið sendi um 100 af eigin starfsfólki til að hjálpa við undirbúning framleiðslunnar í Zwickau.
Zwickau var stofnað sem heimili MEB-grunnsins þegar framleiðsla VW ID3 hófst síðla árs 2019. VW bætir við framleiðslu á ID5, coupé-útgáfu af ID4, á fjórða ársfjórðungi.
Árið 2025 ætlar Audi að setja á markað meira en 20 rafknúnar gerðir.
„Q4 e-tron er byrjunarframboð okkar í rafheimi Audi“, sagði Markus Duesmann forstjóri á árlegum blaðamannafundi bílaframleiðandans 23. mars.
(Automotive News Europe)
Umræður um þessa grein