Blessuð sólin skín á allt
Um nýliðna helgi sat ég í bílnum mínum og áttaði mig á því að sólin væri farin að hallast ískyggilega nálægt því að lýsa í augun á mér þegar að ég ek heim síðdegis. Þá datt mér í hug að nú færi að birtast fljótt frétt um það að ökumenn skyldu vara sig á því að sólin færi nú að skína beint í augun á fólki við aksturinn í og úr vinnu á hinum hefðbundnu tímum. En þá fékk ég þá hugmynd að deila með ykkur, á undan öllum hinum miðlunum, mínar helstu og heitustu pælingar í sambandi við að aka í og úr vinnu með sólina í andlitið.

Hvenær er von á því
Þegar að sólin er um 13° fyrir ofan sjóndeildarhringinn er líklegt að sólargeislar hennar nái að skína beint inn í bílinn, eða nægilega langt fyrir neðan efri brún framrúðu, að hún fari að ná í augu þín. Best er því til varnar að nota sólskyggni og hrein og nýpússuð sólgleraugu, nú eða fá sér 1951 árgerð af Mercury Sport Coupé og láta lækka á honum toppinn og minnka glugganna eins og meðlimir Pharos gengisins óku um á í myndinni American Graffiti. Topp ábending er hinsvegar að geyma sólgleraugun í þartilgerðum hólfum í toppnum á bílnum, en ekki í stóru hólfi á milli sætanna, því þá hitna þau með bifreiðinni og það kemur ekki móða á þau þegar þú skellir þeim á nefið.
En hvenær í ósköpunum er sólin undir 13° fyrir ofan sjóndeildarhringinn? Nú þú getur auðveldlega bætt því inn í morgunrútínuna að athuga á vefsíðunni suncalc.org hvenær þetta mun gerast þann og þann daginn nú eða þú getur notað þumalputtareglu eins og ég. Um það bil þrem tímum fyrir sólsetur og þrem tímum eftir sólarupprás er líklegt að sólin sé lægra en 13° fyrir ofan sjóndeildarhringinn og því líklegt að hún fari að skína í andlitið á þér þegar að þú ekur um landið. Þessi gluggi síðan lengist eða styttist eftir því sem við förum í gegnum árið. Þetta er ágætis þumalputtaregla og hef ég stuðst við hana í nokkurn tíma.
Þegar að þessi orð eru skrifuð erum við að nálgast miðjan október. Sólin var lengi að koma sér upp í morgun og settist full fljótt síðdegis. Dagurinn í dag var rétt rúmir ellefu tímar. Það gefur því augaleið að í fimm tíma um hádegi var líklegt að sólin væri nógu ofarlega á sjóndeildarhringnum til að ekki valda truflunum í akstri. En þessi gluggi styttist og styttist þegar að fram í haustið sækir.
Núna er því komin grein í loftið til að minna þig á að fjárfesta í sterkum og öflugum sólgleraugum og gleyma þeim ekki heima þegar þú ferð út að aka.