Bíltúr: Audi RS3 árgerð 2018

146
DEILINGAR
1.3k
SMELLIR

Bíltúr: Audi RS3 árgerð 2018

Bíltur er nýr bálkur hjá okkur í Bílablogginu. Fyrsti bíltúrinn okkar var farinn um nýliðna helgi og var farskjótinn Aud RS3 árgerð 2018. Eigandinn er Kristinn Soffanías Rúnarsson sem hefur um árabil átt Audi bíla. Við hittumst uppí Norðlingaholti og tókum rúnt um Hellisheiðina og það verður að segjast að þessi knái bíll kom á óvart.

18 tommu low álfelgur fyrir low profile dekk – framdekkin eru breiðari en afturdekkin.
Kristinn sérpantaði pústkerfið undir bílinn.

Krafturinn er nægur undir húddinu á Audinum, mótorinn er 2.5 lítra 5 strokka og skilar um 400 hestöflum – það er ekkert smá afl fyrir svo lítinn og tiltölulega léttan bíl. Grunnur þessa bíls er byggður á MQB grunni Volkswagen sem Audi TT og VW Tiguan deila.

Flottur Audi RS3 Quattro.

Þetta layout er byggt á framdrifsgrunni þar sem vélin er hugsuð þversum í bílnum, fyrir framan framöxul. Sú byggingartækni gerir Audi bílinn framþungan en það virðist þó ekki saka að 60% af þyngdinni sé á framhluta bílsins. Audi RS3 er með hinu víðfræga Quattro fjórhjóladrifi sem dreifir aflinu á milli hjólanna eftir átaki vélarinnar.

Fljótt á litið lítur þessi snaggaralegi bíll ekkert öðruvísi en venjulegur fjölskyldubíll.

Audi RS3 árgerð 2018

Fjöldi strokka: 5 í línu.

Rúmtak: 2.5L.

Hestöfl: 400.

Tog: 480Nm.

Skipting: Audi S-Tronic (VW DSG), 7 gíra dual-clutch.

Fjöðrun: “Mag-ride”. Segulsviðsstýrðir demparar með stillanlegum stífleika.

Eyðsla í blönduðum: Fylgist ekki með því af ásettu ráði (en það er um 13-14 pr. 100km).

Upptak: Frá 0-100 km.: 4.0 sek. samkvæmt Audi.

Nokkar laufléttar

Kústur eða svampur?

Svampur

Handbón eða þvottastöð?

Þvottastöð!

Má borða ís með dýfu og kurli í bílnum þínum?

Já, ef þú ert stopp og situr í bílstjórasætinu

Áttu radarvara?

Ég kýs að tjá mig ekki um það, neita hvorki né játa

Hvaða bóni mælir þú með?

Mæli með bóninu sem var sett síðast á bílinn

Heilsárs eða nagladekk?

Heilsárs í Reykjavík. myndi alltaf vilja nagladekk þegar farið er út fyrir 101

Uppáhalds bensínstöð?

Klárlega Olís í Borgarnesi, hef oft runnið þar inn á gufunum

Kristinn keypti bílinn nýjan 2018 og hannaði bílinn eftir sínum óskum með aðstoð Heklu.
Hentar vel í borgaraksturinn en stendur sig ekki síður vel á Kvartmílubrautinni.
Stafrænt mælaborð Audi.

Við hjá Bílabloggi þökkum Kristni Soffaníasi Rúnarssyni kærlega fyrir rúntinn.

?
Myndataka og klipping: Dagur Jóhannsson

Ljósmyndir: Dagur Jóhannsson og Kristinn Soffanías Rúnarsson

Svipaðar greinar