Sunnudagur, 29. júní, 2025 @ 19:48
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Bílar tókust á loft og bensíndæla gafst upp

Malín Brand Höf: Malín Brand
08/02/2022
Flokkar: Bílasagan
Lestími: 4 mín.
278 9
0
137
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Febrúarmánuður er frægur hér á landi. Frægur fyrir veður sem er eflaust með því versta í heimi sé mið tekið af höfðatölu. Svo vont var veðrið í febrúar bæði 1981 og 1991 að bílar tókust á loft og Engihjallinn í Kópavogi varð frægur, rétt eins og sjálfur febrúar. Þá var nefnilega „fokið í flest skjól“ í orðsins fyllstu.

Fréttamanni nóg boðið

„Þetta er hið ógeðslegasta veður á alla lund,“ sagði fréttamaðurinn Óðinn Jónsson í útvarpsfréttum þann 3. bebrúar árið 1991. Það er nú ekki oft sem fréttamenn nota orðið „ógeðslegt“ en þarna var mínum fyrrum kollega, Óðni Jónssyni, svo endanlega nóg boðið af veðurofsanum að orðið ógeð var vel við hæfi til að lýsa því sem boðið var upp á af veðurúrvali náttúrunnar. Hlusta má á upptökuna af frétt Óðins hér.

Hér má sjá nýbyggingu í Engihjallanum og allt á tjá og tundri. Mynd úr frétt Ríkissjónvarpsins 1981.

Enda eru þessi ósköp sem Íslendingar upplifðu í febrúar 1981 og 1991 enn með versta veðri sem gengið hefur yfir landið frá því orðasambandið „vont veður“ varð til. Eða svo gott sem.

Í desember 2015 var í fréttum RÚV rætt við Trausta Jónsson veðurfræðing og hann minntist þar á fyrrnefnd ósköp ´81 og ´91:

„Verstu veðrin, sem hafa orðið síðustu öld og kannski rúmlega það, eru veðrið 1991 en aldrei hefur orðið meira tjón í einu óveðri en þá. Síðan er það 1981, 1973, 1953, 1936 og svo kannski árið 1900 […]. Árið 1908 fuku líka flestar hlöður á Suðurlandi en þess ber að geta að þá voru slík mannvirki mun lélegri en í dag,” sagði Trausti.

Færri hlöður fjúka nú

Það eru færri hlöður á Suðurlandi sem geta fokið í óveðrinu núna en hins vega fleiri ökutæki og hjólhýsi eins og Trausti kom skemmtilega inn á í sömu frétt og vísað var í hér fyrir ofan:

„Það fuku engir tjaldvagnar eða hjólhýsi fyrir hundrað árum og almennt er það mun meira sem getur fokið í dag heldur en snemma á síðustu öld. Síðan er misjafnt hvar veðrið ber niður. Eðlilega verður meira tjón ef það gerir fárviðri í þéttbýli heldur en í dreifbýli þar sem minna er af mannvirkjum og munum.”

Trausti sagði líka að ljóst væri að veðrin 1991 og 1981 væru einhver þau alverstu sem sögur færu af hér á landi.

Veðrið lagði þessa bensíndælu að velli. Það fór margt á hliðina í veðurofsanum 1991. Skjáskot/YouTube

Það er um að gera að rifja þetta upp til að minna á að ekkert sé svo vont að það geti ekki versnað en líka til að minna á að þetta hefur sko verið mun verra en það er núna. Með fullri virðingu fyrir leiðindunum sem gengið hafa yfir landið síðustu klukkustundrnar með tilheyrandi óþægindum og tjóni.

Bílar tókust á loft og bústaður fauk í heilu lagi

Sem fyrr segir þá var urðu tugþúsundir Íslendinga fyrir tjóni vegna veðurofsans þann 3. febrúar árið 1991. Þann dag varð nefnilega mesta tjón sem orðið hefur á mannvirkjum í einu fárviðri hér á landi, að þávirði meira en 1 milljarður króna.

Annað af langbylgjumöstrunum á Vantsendahæð hrundi í óveðrinu, í Önundarfirði fauk sumarbústaður á haf út í heilu lagi og í Hrunamannahreppi splundraðist fjárhús.

Já, þó að rafmagn hafi sums staðar farið af í nótt og svona þá er þetta kannski ekkert 1991-veður.

Þó að myndgæðin verði ekki metin í fiskum má vel sjá að þarna í Engihjallanum árið 1991 fauk bíll. Skjáskot/youTube

„Engihjallaveðrið“ sem frægt er vísar þó aðallega til veðurofsans árið 1981 þó svo að Engihjallinn hafi endurvakið frægð sína áratug síðar með sendingum bíla í loft upp og fleira í þeim dúr.

Hér er myndband þar sem sjá má dálítið af því sem hér hefur verið fjallað um, einkum tengist myndefnið bílum (að sjálfsögðu) en þess ber að geta í tengslum við myndbandið að þar gleymdist alveg að setja einhvers konar músík þannig að ef áhorfendur eru búsettir á Íslandi ætti að duga að opna glugga og þá er svipað hljóð komið.

Tengt efni:

Þá snjóaði í „helvíti“: Ófært í Istanbúl

Þá sjaldan það snjóar á þessum slóðum

Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.

Fyrri grein

Hvaða bíll var Tatra T87?

Næsta grein

EV eða PHEV? Sá á kvölina sem á völina

Malín Brand

Malín Brand

Akstursíþrótta- og blaðamaður

Svipaðar greinar

Af hverju er merkið á Audi fjórir hringir?

Af hverju er merkið á Audi fjórir hringir?

Höf: Jóhannes Reykdal
23/06/2025
0

Audi var stofnað árið 1909 en fékk ekki fjóra hringi fyrr en árið 1932. Við skoðum söguna… Ef einhver segði...

Ford Pinto, elskaður og hataður

Ford Pinto, elskaður og hataður

Höf: Pétur R. Pétursson
08/04/2025
0

Ford Pinto var svar Ford Motor Company við vaxandi samkeppni frá japönskum og evrópskum smábílum á sjöunda áratugnum. Pinto var...

1969 BMW 2000CS – klassískur kúpubakur!

Höf: Pétur R. Pétursson
09/03/2025
0

BMW 2000CS er hluti af „Neue Klasse“ línunni frá BMW og var framleiddur frá árinu 1965 til 1969. Þetta var...

Hvað er „sportjeppi“? Við höfum svarið … eða þannig

Hvað er „sportjeppi“? Við höfum svarið … eða þannig

Höf: Jóhannes Reykdal
16/02/2025
0

En umræðurnar halda áfram..... Ein umdeildasta umræða í bílaheiminum er um skilgreininguna á SUV („Sport Utility Vehicle”) sem við hér...

Næsta grein
EV eða PHEV? Sá á kvölina sem á völina

EV eða PHEV? Sá á kvölina sem á völina

Umræður um þessa grein

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Bílaheimurinn

Novan var vinsæl á rúntinum í denn

29/06/2025
Bílaframleiðsla

Nýi Recon-jeppinn frá Jeep er að mótast sem Wrangler rafbílanna

28/06/2025
Bílaheimurinn

Kia EV3 GT-Line frumsýndur á Íslandi

25/06/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.