Audi Q6 e-tron S-line – punkturinn yfir i-ið hjá Audi

Tegund: Audi Q6 e-tron

Árgerð: 2025

Orkugjafi: Rafmagn

Aksturseiginleikar, hönnun, drægni, tækni
Stór rafmagnslok opnast út
317
DEILINGAR
2.9k
SMELLIR

Það kemur ekki oft fyrir að rafbíll nái að sameina lúxus, öflugan akstur og hágæða hönnun með jafn sannfærandi hætti og Audi Q6 e-tron S-line – sem sagt allt í sama pakkanum.

Bíllinn er nýjasta viðbótin í ört vaxandi rafbílaflóru Audi og stendur sannarlega fyrir sínu – bæði í útliti og aksturseiginleikum.

Athygli vekur að þú spáir ekkert í hvort þú sért að aka bíl sem gengur fyrir rafmagni. Upplifunin er bara frábær.

Glæsileg hönnun sem vekur athygli

Við fyrstu sýn grípur bíllinn athygli með sportlegu og kraftmiklu yfirbragði. Í S-line útfærslunni fær hann svartan útlitspakka, 21″ Audi Sport álfelgur og dökkar rúður, sem skapa fágaðan og nútímalegan heildarsvip.

Digital OLED afturljósin gefa honum hátæknilegt yfirbragð og undirstrika það sem Audi gerir best – að sameina fágaða hönnun og tæknilegar nýjungar.

Ljós á nútímabílum eru í sjálfu sér listaverk. Hér eru MATRIX LED ljós sem þú getur stillt eins og í diskóteki, viljir þú setja þinn svip á bílinn.

Lúxus í hverju smáatriði

Þegar sest er inn tekur lúxusinn við af fullu afli. Dinamica/leður áklæði með tíglamynstri, nudd í framsætum, og stemnings lýsing skapa notalegt og þægilegt andrúmsloft.

Flatbotna sportstýri, rafstillanlegt og upphitað, ásamt stafrænu splunkunýju mælaborði og panorama skjám tryggja að ökumanni líði eins og í framtíðarbíl.

Uppfærsla á mælaborði Audi er virkilega vel heppnuð. Miklu betra en áður.

Hita- og hljóðeinangrandi rúður, þriggja svæða loftstýring og leðurklæðning í innréttingu sýna skýrt að Audi leggur metnað í þægindi allra innanborðs.

Öll stjórnun er einföld og straumlínulöguð – hvort sem er í gegnum snertiskjái eða MyAudi appið.

Akstursupplifunin

Audi Q6 e-tron S-line er með loftpúðafjöðrun, sem gerir hann einstaklega stöðugan og þægilegan í akstri. Hann liggur eins og sleggja á veginum, hreyfist mjúklega og dregur ójöfnur til jarðar með yfirvegun.

Við náðum meira að segja myndum af bílnum á akstri á um 90 km/klst. og sést nokkuð vel hvernig fjöðrunin virkar á Vesturlandsveginum – (sjá mynband).

Sætin eru hönnuð fyrir langa setu og hraðan akstur. Það fór feykilega vel um mann í þessum sætum.

Með 387 hestöfl og hröðun úr 0 í 100 km/klst á 5,9 sekúndum er aflið til staðar þegar þess er þörf – hvort sem þú tekur af stað á ljósum eða þarft að taka fram úr. Togið eru um 855 Nm.

Hámarkshraði er 210 km/klst og drægi allt að 562 km samkvæmt WLTP staðli, sem gerir hann fýsilegan kost fyrir bæði daglega notkun og lengri ferðir.

Drægnin á Audi Q6 línunni er um 560-616 km. skv. WLTP.

e-tron lógóið er greypt í bílinn ef svo má segja.

Stýrið er nokkuð nákvæmt, viðbrögðin skörp og með adaptive cruise assist sem virkar til dæmis þannig að þegar þú ekur að hringtorgi dregur bíllinn úr ferð, 360 gráðu myndavél, akgreinavari, og öflugt öryggiskerfi, Audi pre sense.

Tæknin

Q6 e-tron S-line er tækniundur í sjálfu sér. Hann býður upp á bæði AC hleðslu með 11 kW og DC hraðhleðslu upp að 270 kW, sem tryggir allt að 255 km drægni á aðeins 10 mínútum.

Þú ert ekki nema rétt um 20 mínútur að hlaða frá 10-80% ef þú hefur öfluga hleðslustöð sem gerir þér kleift að ná jafnri og hraðri hleðslu.

Hér er allt vandað og vel frágengið að hætti Audi. Þykk teppi, farangursnet og takkar fyrir niðurfellingu sæta.

Það eina sem okkur fannst skrítið er hvað rafmagnslúgurnar eru stórar og opnast í 90° út frá bílnum í stað þess að lokið fari upp með bílnum eða niður með boddíinu eins og t.d. í Tesla. Reyndar var það þannig á e-tron áður.

Komið hefur fyrir að rafhleðslulúgur rafbíla brotni af í þröngum stæðum þegar fólk treðst á milli bíla með kaplana í hleðslugáttinni.

Afturhlutinn er sterklegur og skotthlerinn er að sjálfsögðu rafdrifinn.

Annað sem okkur fannst nokkuð furðulegt að í bílnum sé sígarettukveikjari – eitthvað sem sést ekki bílum í dag. Pabbi reykti reyndar oft í bílnum þegar ég var barn og sat aftur í (þá vissi fólk ekki hvað barnastóll þýddi) – eitthvað sem í minningunni er bara ekki skemmtilegt að rifja upp.

Bíllinn er einnig með MMI Plus infotainment-kerfi, skjá fyrir farþega, Audi application store og hljóðkerfi sem tryggir virkilega flott hljómgæði.

Fyrir þá sem vilja meira má bæta við Bang & Olufsen 3D hljóðkerfi sem aukabúnað.

Gerðir í boði

Audi Q6 e-tron kemur í fjórum meginútfærslum: Tech, Tech Plus, S-line og SQ6, hver með sinn karakter og mismunandi búnað. Allar gerðir byggja á öflugu fjórhjóladrifi og 94,9 kWh rafhlöðu, með mismunandi drægi allt að 616 km eftir útfærslu. Þú getur einnig valið um Sportback útgáfu eða SUV.

Þú þarft ekki að hafa stórar áhyggjur af bremsum í Audi, hann stoppar örugglega þegar þú óskar eftir því.

Fyrir hverja hentar Audi Q6 e-tron S-line?

  • Lúxus og þægindi í daglegum akstri – með hágæða innréttingum, nuddi í sætum og mjúkri fjöðrun
  • Tæknivæddan og hljóðlátan rafbíl – með snjallforritum, stafrænu mælaborði og þráðlausri hleðslu
  • Sportlegan stíl og öryggi – með stórum og fallegum felgum, öflugum ljósum og háþróuðum öryggiskerfum
  • Fjölskyldufólk sem vill rými og hagnýta hönnun – með 526 lítra farangursrými og miklu innanrými
  • Fólk sem ferðast – vill hraðhleðslu, mikla drægni og frábæra hljóðeinangrun

Niðurstaða – lúxus í mismunandi útfærslum

Audi Q6 e-tron er bíll sem stendur undir nafni – hvort sem þú velur grunnútgáfuna Tech eða hámarksafköstin í SQ6.

Í S-line færðu hins vegar óvenjulegt jafnvægi á milli lúxusbúnaðar, tækni og sportlegra eiginleika.

Þetta er bíll sem gleður bæði augað og skynfærin – með mjúkri fjöðrun, hljóðlátri upplifun og áreiðanleika sem fáir aðrir en Audi geta boðið.

Hér er nægt pláss fyri alla. Fínt fótapláss, höfuðpláss og sætin djúp og þægileg.

Skemmtilegt að sjá hvernig Hekla hefur raðað upp gerðum til að þjóna sem flestum þeim sem vilja aka Audi.

Þú getur valið úr fjölda gerða, fullt af möguleikum á aukabúnaði og þú sníðir bílinn eftir þínum þörfum. Þú setur örugglega punktinn yfir i-ið með því að velja einn af Audi Q6 gerðunum.

Myndband

Helstu tölur:

Verð frá:  12.690.000 – 19.090.000 kr.

Afl: 387/517 hö.

Tog: 855 Nm.

Rafhlaða: 94,9 kWh.

Drægni: 571/616 km. skv. WLTP.

Dráttargeta: 2400 kg. m. bremsubúnaði

Lengd/breidd/hæð – mm: 4.771/1.939/1.648

Svipaðar greinar

Svipaðar greinar