Árleg Jeppasýning Toyota í Kauptúni

138
DEILINGAR
1.3k
SMELLIR

Árleg Jeppasýning Toyota í Kauptúni

Árleg Jeppasýning Toyota í Kauptúni verður haldin á morgun,  laugardaginn 18. mars. Opið verður frá kl. 12 – 16 og þá gefst gestum kostur á að sjá allt það helsta sem Toyota hefur upp á að bjóða í jeppum og sportjeppum.

Á sýningunni verða fjórhjóladrifsbílar allt frá Yaris Cross og Corolla Cross en einnig stærri sportjepparnir, RAV4 og Highlander og svo að sjálfsögðu foringjar ferðabílanna og kóngarnir meðal fjallajeppanna, Hilux og Land Cruiser.

Þá er ótalinn rafmagnsbíllinn bZ4X sem gefur jeppunum lítið eftir í torfæruhæfileikum enda fáanlegur með hinu magnaða X-mode drifi.

Land Cruier 150 björgunarsveitarbíll

Á sýningunni verður úrval breyttra jeppa frá Arctic Trucks, útilegubúnaður á bíla frá iKamper, kerrur og annar ferðabúnaður frá Bílanaust og fjórhjól og önnur tæki frá Ellingsen.

LandCruiser 150 – 70 ára afmælisútgáfa
Nýr Hilux með 2,8 l vél hefur 3,5 tonna dráttargetu
Vel búinn Hilux

Jeppasýning Toyota Kauptúni er tilvalið tækifæri til að sjá allt það nýjasta í jeppum og sportjeppum og þeim búnaði sem gerir jeppaferðina enn þá skemmtilegri og sumarið eftirminnilegt.

(fréttatilkynning frá Toyota)

Svipaðar greinar