Þriðjudagur, 19. ágúst, 2025 @ 16:29
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Apollo EVision S kynntur á China International

Jóhannes Reykdal Höf: Jóhannes Reykdal
09/11/2021
Flokkar: Bílaframleiðsla
Lestími: 3 mín.
267 17
0
136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Kínverska fyrirtækið Apollo Automobil ætlar að sækja fram í flokki rafdrifinna lúxusbíla og verður Apollo EVision S fyrsti rafbíllinn sem kemur á markað frá því fyrirtæki.

Við þekkjum nafnið Apollo frá tunglferðunum fyrir 50 árum eða svo. Á árunum í kringum 2000 var til þýskt sportbílafyrirtæki sem hét Gumpert Sportwagenmanufaktur, síðar Apollo Automobil, sem komst í eigu kínverskra aðila í Hong Kong, Ideal Team Venture, árið 2016, eftir gjaldþrot upprunalega fyrirtækisins.

En núna hefur þessu nafni verið skotið upp á „bílahimininn“ aftur með kynningu á alveg nýjum bílum á sýningu í Kína.

Apollo Automobil hefur svipt hulunni af þremur nýjum hugmyndabílum á China International Import Expo 2021 í Hong Kong. Tríóið sýnir næstu kynslóð vörumerkisins og útlistar sókn fyrirtækisins í átt að „hreyfanleika í hreinu lofti“.

Mikilvægasta farartækið sem var til sýnis var Apollo EVision S. Þetta er hreinn rafknúinn fjögurra sæta, fjögurra dyra coupe-fólksbíll, sem fyrirtækið segir að sé sérstaklega hannað fyrir fjölskyldur.

Á leiðinni í framleiðslu

Fréttir benda til þess að Apollo hafi áform um að setja EVision S í framleiðslu. Hann mun verða keppinautur Audi e-tron GT og Porsche Taycan. Síðuar mun hann fá til liðs við sig EVision X sportjeppa sem er hannaður til að takast á við Mercedes EQS sportjeppann og Tesla Model X.

EVision S er með sama áberandi útlit hönnunar og notað er á IE ofurbílnum, með lágu nefi, gríðarstórum inntökum og þríhyrningslaga framljósum.

Og þó að það sé ekki sérstaklega tekið fram, er gert ráð fyrir að bíllinn verði knúinn af nýju 800 volta rafdrifi sem hannað er hjá fyrirtækinu.

Kerfið var einnig á sýningunni. Það samanstendur af tveimur hreinum rafmótorum fyrri driföxulinn sem festir eru saman í eina sambyggða einingu, sem gerir kleift að færa tog á öxulinn. Apollo ætlar að selja kerfið til annarra framleiðenda einnig.
Önnur farartæki á Apollo básnum innihéldu frumgerð fyrir komandi arftaka fyrirtækisins fyrir IE „ofurbílinn“ – Project Evo. Líkt og gamli bíllinn er hann með skrautlegt geimskip, að vísu með sex nýjum risastórum uggum sem stingast út úr vindskeiðinni að aftan. Þarna er líka fullt af virkum loftflæðihlutum og þrískiptu útblásturskerfi.
Project Evo byggir á nýrri koltrefja samlokuhönnun og öryggisklefa, sem Apollo segir að sé svo stífur að hann uppfylli öryggisreglur FIA LMP2 án þess að þörf sé á veltibúri. Hann verður knúinn áfram af „náttúrulegri aflrás“ sem gera má ráð fyrir að verði enn öflugri útgáfa af 780 hestafla 6,3 lítra V12 vél gamla bílsins.
Apollo kynnti einnig hugmynd sína um nýjustu gerð sendibíla, sem kallast UME (það er Universal Mobility Electrified). Hugmyndbílinn var sýndur á síðasta ári – en verkfræðingar fyrirtækisins hafa nú komið kaffivél fyrir í bílnum til að sýna hvernig fyrirtæki gæti notað farartækið sem vettvang til að græða peninga á.

(frétt á vef Auto Express)

Fyrri grein

Þetta gæti pottþétt verið verra!

Næsta grein

Hjólhýsaklessubílakeppni – hvað er það?

Jóhannes Reykdal

Jóhannes Reykdal

Ritstjóri og blaðamaður

Svipaðar greinar

Nýr rafknúinn Nissan Micra

Nýr rafknúinn Nissan Micra

Höf: Jóhannes Reykdal
18/08/2025
0

Nissan mun miða „glæsilegri“ rafknúinn Micra að kvenkyns kaupendum PARÍS — Nissan gaf teyminu sem var að hanna nýja rafknúna...

Nýr Skoda Octavia Electric er forsýndur með Vision O hugmyndabílnum

Nýr Skoda Octavia Electric er forsýndur með Vision O hugmyndabílnum

Höf: Jóhannes Reykdal
05/08/2025
0

Skuggmynd minnir okkur á að Skoda stefnir að því að sigra markaðinn fyrir rafknúna stationbíla Skoda hefur verið að framleiða...

Honda Civic hefur fengið nýtt útlit

Honda Civic hefur fengið nýtt útlit

Höf: Jóhannes Reykdal
04/08/2025
0

Með nýrri uppfærslu á Honda Civic er kynnt nýtt útlit fyrir 11. kynslóð gerðarinnar Nýi Prelude fra Honda kemur fram...

Honda N-ONE e – Lítill rafbíll með mikinn persónuleika

Honda N-ONE e – Lítill rafbíll með mikinn persónuleika

Höf: Jóhannes Reykdal
02/08/2025
0

Það er stundum gaman að fylgjast með hvernig „smábílamarkaðurinn“ í Japan þróast.   Peter Johnson hjá electrek-vefnum var að fjalla um...

Næsta grein
Hjólhýsaklessubílakeppni – hvað er það?

Hjólhýsaklessubílakeppni - hvað er það?

Umræður um þessa grein

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Álit

Volkswagen ID.Buzz GTX – fortíðin mætir nútímanum

18/08/2025
Bílaframleiðsla

Nýr rafknúinn Nissan Micra

18/08/2025
Bílaframleiðsla

Nýr Skoda Octavia Electric er forsýndur með Vision O hugmyndabílnum

05/08/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.