Mánudagur, 18. ágúst, 2025 @ 19:30
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Alveg Gaga bílasafnari

Malín Brand Höf: Malín Brand
06/03/2022
Flokkar: Bílaheimurinn
Lestími: 6 mín.
273 12
0
136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Einu sinni vissi ég ekki almennilega hver Lady Gaga var. Ég veit það ekki enn. Eftir að ég var send til að mynda Gaga og Yoko Ono á afmælisdegi meistara John Lennon árið 2012 hefur mér verið vel við Gaga því gaman var að taka af henni myndir og nú veit ég að hún safnar bílum!

Hún er tónlistarkona en einskorðast hæfni hennar ekki bara við tónsviðið. Lady Gaga (sem er auðvitað ekki nafnið sem hún fékk sem barn en hitt nafnið er hræðilega langt og Gaga er einfaldara) hefur leikið í kvikmyndum og örugglega gert margt fleira en kjarni málsins er sá að hún tilheyrir sérstakri tegund fólks.

Tegundin Homo sapiens bilasafnarensis

Auðvitað er þessa tilteknu tegund ekki að finna í flokkunarfræðikerfinu undir mannættkvíslinni en þetta var nú smá grín svona á sunnudegi.

Nema hvað! Lady Gaga er bílasafnari og bílaáhugamanneskja. Hún notar líka fínu bílana sína sem er – ótrúlegt nokk – ekki algilt um vel fjáða bílasafnara. Við aurarýru safnararnir notum mestu sparibílana okkar stundum af illri nauðsyn þegar allt annað er bilað. Þá ekur maður og eyðileggur fornbíla í saltpækli og slabbi.

Lady Gaga við ´65 Lincoln Continental Convertible sem manni skilst að hún eigi. Myndir/Instagram/LadyGaga

Lady Gaga gerir ekki svoleiðis. Hún ekur bílunum sínum í góðu veðri, örugglega  í Kaliforníu, því þar búa jú margar stórstjörnur sem safna bílum. Eins og til dæmis Jay Leno og Jerry Seinfeld.

Snjallt af þeim að leggja það á sig að búa þar, örugglega gera þeir það gagngert til að hlífa bílunum sínum og geta ekið um í blíðviðri flesta daga ársins.

Nóg um það – í bílana með okkur! Hér fyrir neðan eru einhverjir af þeim bílum sem Gaga á sjálf eða ekur, burtséð frá eignarhaldi:

Lincoln Continental Convertible (1965)

Það er frekar erfitt að átta sig á hvar hún Gaga er á myndunum því hún er eins og kamelljón. Breytist í sífellu. Þannig að ég geng út frá því að á Instagram myndunum sé hún sjálf og auðvitað á myndunum sem ég tók af henni þarna um árið (ein þeirra er hér efst). Annars er hún dökkhærð á einni, ljóshærð á næstu og krúnurökuð á einhverri annarri mynd.

Ford Mustang ´67 á hún sennilega líka en það er ekkert auðvelt að fara í gegnum Instagram-ið hennar og leita. Það þykir greinilega fleirum gaman að taka myndir af henni.

1967 Ford Bronco

Nú getur vel verið að Lady Gaga eigi ekkert alla þessa bíla sem hún birtir myndir af á Instagramminu sínu… En þó virðist hún aka alls konar bílum og af úrvalinu að dæma þá hefur hún skemmtilegan smekk, að mati undirritaðrar. Hvort sem hún leigir bílana, á þá eða „fann“ þá, eins og sumir virðast gera.

Lamborghini Huracán LP 610-4 coupe (2017)

Chevy Nova SS (1969)

Þær eru að gera eitthvað ósmekklegt með fingrunum, stúlkurnar á myndinni – látið sem ekkert sé og skoðið frekar bílinn.

Chevrolet El Camino (1970)

Mercedes W123 300D (1983)

Svo segja ýmsir vefmiðlar að hún eigi nokkra Rolls-Royce glæsivagna; þar á meðal Rolls-Royce Corniche III (1990) og tvo af gerðinni Rolls-Royce Phantom. Rolls-Royce Corniche III mun hún hafa keypt árið 2009 og hann var víst eini bíllinn hennar á þeim tíma. Það segir m.a. á vef GQ.

Eins og undirrituð hefur margsinnis komið inn á í skrifum hér á Bílabloggi, er engin tenging á milli þess að vera góður ökumaður og þess að vera bílasafnari. Rétt eins og engin tenging er á milli þess að hafa gaman af matargerð og getunnar til að elda mat sem er ætur.

Við höfum heila þjóð sem er sorglegt dæmi um slíkt en förum ekki nánar út í það og nefnum engin nöfn. Þeir búa alla vega til fallega bíla, blessaðir Bret… já, ekki orð um það meir.

Skjáskot/Instagram/LadyGaga

Mér var því að vonum brugðið þegar í ljós kom að Lady Gagaa öðlaðist ökuréttindin fyrir rúmum fimm árum. Þá þrítug. Og miðað við hversu mjög hún fagnar og kyssir götuna á myndinni hér að ofan þá verð ég að segja að sennilega hefur hún þurft að hafa nokkuð fyrir þessu. Maður kyssir ekki götur að þarflausu, er það?

Enn verra hefði þó verið ef prófdómarinn hefði fleygt sér í götuna og kysst drullugt malbikið. En hvað vitum við? Kannski gerði hann það en enginn tók mynd.

Maður á ekki að hrapa að ályktunum. Það er ekki greindarmerki og í raun sterk vísbending um grunnhyggni og almennan slóðaskap í hugsun.

Þess vegna skoðaði ég margar myndir af Gögu (fallbeygist nafnið kannski ekki?) þar sem hún ekur bíl og gaf ég farþegum hennar sérstakan gaum. Þeir virðast margir hræddir eða stressaðir. Jafnvel eru sumir á svip og af líkamsstöðu að dæma bara stressaðir og fálmandi eitthvað. Já, þetta lítur ekki vel út en kannski er hún búin að æfa sig.

Eftir frekari athuganir komu fleiri myndir upp á Instagram sem sýndu nokkuð greinilega að Lady Gaga virtist eitthvað þurft að hafa fyrir þessum ökuréttindum sínum árið 2016. En hvað með það? Kannski er hún bara fantafínn ökumaður í dag, fimm árum síðar.

En hvernig sem þeim málum er háttað þá er Lady Gaga bílaáhugamanneskja mikil.

Fleiri tónelskir bílasafnarar eða bílelskir tónasafnarar:

John Lennon var afleitur bílstjóri

Söngvari Metallica kemur á óvart!

Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.

Fyrri grein

Polestar O? kynntur í Los Angeles

Næsta grein

Bílakokkurinn síbölvandi: Gordon Ramsay

Malín Brand

Malín Brand

Akstursíþrótta- og blaðamaður

Svipaðar greinar

Nýr rafknúinn Nissan Micra

Nýr rafknúinn Nissan Micra

Höf: Jóhannes Reykdal
18/08/2025
0

Nissan mun miða „glæsilegri“ rafknúinn Micra að kvenkyns kaupendum PARÍS — Nissan gaf teyminu sem var að hanna nýja rafknúna...

Nýr Skoda Octavia Electric er forsýndur með Vision O hugmyndabílnum

Nýr Skoda Octavia Electric er forsýndur með Vision O hugmyndabílnum

Höf: Jóhannes Reykdal
05/08/2025
0

Skuggmynd minnir okkur á að Skoda stefnir að því að sigra markaðinn fyrir rafknúna stationbíla Skoda hefur verið að framleiða...

Honda Civic hefur fengið nýtt útlit

Honda Civic hefur fengið nýtt útlit

Höf: Jóhannes Reykdal
04/08/2025
0

Með nýrri uppfærslu á Honda Civic er kynnt nýtt útlit fyrir 11. kynslóð gerðarinnar Nýi Prelude fra Honda kemur fram...

Honda N-ONE e – Lítill rafbíll með mikinn persónuleika

Honda N-ONE e – Lítill rafbíll með mikinn persónuleika

Höf: Jóhannes Reykdal
02/08/2025
0

Það er stundum gaman að fylgjast með hvernig „smábílamarkaðurinn“ í Japan þróast.   Peter Johnson hjá electrek-vefnum var að fjalla um...

Næsta grein
Bílakokkurinn síbölvandi: Gordon Ramsay

Bílakokkurinn síbölvandi: Gordon Ramsay

Umræður um þessa grein

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Álit

Volkswagen ID.Buzz GTX – fortíðin mætir nútímanum

18/08/2025
Bílaframleiðsla

Nýr rafknúinn Nissan Micra

18/08/2025
Bílaframleiðsla

Nýr Skoda Octavia Electric er forsýndur með Vision O hugmyndabílnum

05/08/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.