Áætlanir um nýjan Ineos rafmagns jeppa gerðar opinberar

137
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR

Áætlanir um nýjan Ineos rafmagns jeppa gerðar opinberar

Sir Jim Ratcliffe, stjórnandi fyrirtækisins, tilkynnti um áætlanir um minni Ineos rafmagnsjeppa, og Auto Express birti mynd af því hvernig hann gæti litið út

Við höfum áður flutt fréttir af því að Ineos Automotive er að koma fyrstu gerð sinni, Grenadier-jeppanum, á markað, en hefur samhliða hafið þróun á nýjum, aðeins minni, alrafmögnuðum torfærubíl.

Samkvæmt frétt Steve Fowler hjá Auto Express er það þeirra skilningur að nýja gerðin eigi að koma í sölu árið 2026, eftir pallbíls-útgáfu af Grenadier.

Stefnt er að því að klára hönnunina innan skamms og tækniforskriftin er þegar að taka á sig mynd.

Mynd Avarvarli sýnir hvernig Auto Express heldur að rafjeppinn gæti litið út, með fullt af vísbendingum frá harðgerðum stóra bróður sínum.

Gert er ráð fyrir að hlutföll Grenadier verði færð yfir á nýja bílinn, en búist er við að rafbíllinn sitji aðeins lægra, með nokkrum loftaflfræðilegum breytingum til að auka skilvirkni og auka drægni.

Í samtali við Auto Express við kynningu á Grenadier, sagði Sir Jim Ratcliffe, yfirmaður Ineos, meira um áætlanir fyrirtækisins um stækkun með rafknúnri gerð.

„Hjá Grenadier sjálfum er einstök staða hans á markaði augljóslega utanvegahlutinn.

Og ég held að við munum reyna að halda þemanu í gegnum hvaða svið sem við endum með,“ sagði Ratcliffe.

„Ég veit ekki hversu mikið þið vitið um rafmagnsútgáfuna af Grenadier, en við erum vel á veg komin með það verkefni.”

„Hann verður að fullu rafknúinn, með drægni upp á 400 kílómetra. Hann verður aðeins minni en Grenadier, en hann mun líta svipað út og stóri bróðir, býst ég við.

Þetta er torfærutæki, þannig að samkvæmt skilgreiningu er þetta frekar harðger bíll og þarf að geta borið dálítinn þunga, sem Grenadier augljóslega gerir.

„En það sem ég myndi segja er að ég myndi vilja sambærilegt drifkerfi BMW vélarinnar sem við höfum: í einni og sömu útgáfu og fyrir og bensín- og dísilvélarnar sem við höfum í Grenadier.

Það sem við ljúkum við þarf að vera, að mínu mati, eins gott og það sem í boði er á markaðnum.

„Bílabatterí eru að breytast úr 400 volt í 800 volt – ég held að tæknin muni fara upp í 800 volt vegna þess að hún hefur ákveðna kosti.

En við getum ekki beðið þangað til 800 volta lausnin kemur. Það munu líklega ekki koma slíkar rafhlöður fyrr en undir 2027 eða jafnvel 2028.

„Okkar kerfi verður eins og það sem þú sérð í Mercedes og BMW í dag. Þannig að 400 kílómetra drægni í þessari stærð og þyngd væru, held ég, góður árangur.

Hann verður hagnýtur því hægt er að keyra frá London til Manchester á einni hleðslu. Þetta snýst ekki bara um að geta keyrt frá London út til Windsor, sem er vandamálið með marga rafbíla í dag.“

Magna Steyr leiðir þróunina

Enn og aftur mun Magna Steyr leiða þróunina, undir leiðsögn Ineos Automotive teymisins með aðsetur í Bretlandi, en Grenadier hönnuðurinn Toby Ecuyer tekur einnig þátt í hönnun nýja bílsins.

Ratcliffe leiddi í ljós að nýja gerðin myndi nota sérsniðinn undirvagn. En auðvitað eru fullt af kostum í stöðunni, þeir verða bara skoðaðir.

Dæmi um „hjólabrettalag“ svipað því sem myndi verða notað við hönnun á rafjeppa frá Ineos.

„Undirvagn sem byggir á hugmyndinni um „hjólabretti“ er einstök fyrir Grenadier,“ sagði Ratcliffe. „Og þetta er ekki bara eitthvað„hjólabretti“, þetta er okkar grunnur og hönnun.

Við heyrum að menn eru spenntir og mikið er spjallað og spáð í spilin. Við höfum hugmynd, við höfum tímalínu og það er árið 2026 sem við munum koma með gripinn.“

Ratcliffe leiddi einnig í ljós að framleiðslan yrði ekki endilega í Hambach verksmiðju Ineos þar sem Grenadier er framleiddur.

„Nei, ég held að staðsetning framleiðslunnar gæti orðið blönduð – ekki bara á einum stað“ sagði hann. „Á endanum býst ég við að við þurfum að hugsa framleiðsluna á fleiri stöðum í heiminum.

En nei, ég er ekki viss um hvar við munum smíða rafbílinn. Það er reyndar ekki ákveðið enn.”

Það er ekkert vitað um nafn á nýja Ineos rafbílnum, en Ratcliffe leiddi getur að nafninu.

„Það er hugmynd um mjög snjallt nafn á E, reyndar, en ég ætla ekki að segja neitt. Mjög snjallt nafn, sem ég held að við gætum notað,“ sagði hann.

(frétt á vef Auto Express)

Svipaðar greinar