Mánudagur, 30. júní, 2025 @ 0:54
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Á því herrans ári

Pétur R. Pétursson Höf: Pétur R. Pétursson
23/07/2022
Flokkar: Bílasagan
Lestími: 7 mín.
280 9
0
138
DEILINGAR
1.3k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Á því herrans ári

Sjöundi áratugurinn var spennandi í bílaheiminum. Bílaframleiðsla var að breytast og nýjar og öðruvísi gerðir litu dagsins ljós. Við ætlum að skoða fyrst árið 1968.

Dagblaðið Tíminn fór á bílasýningu í London og gerði henni góð skil með sérblaði sem kom út miðvikudaginn 1. nóvember 1967.

Skodinn gerði það gott.

Vorið í Prag

En hvað var það sem bílaframleiðendur voru að kynna á þessu ári, þegar bítlaæðið var í algleymingi og hin svokallaða ’68 kynslóð skemmti sér með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Það ár kom vor sem kennt var við borgina Prag í Tékkóslóvakíu, Nasa skellti á braut Apollo númer 8 og við hér á skerinu skiptum yfir í hægri umferð.

Svona voru auglýsingar dagblaðanna 1968; flestar bílatengdar. Nú auglýsa umboðin bara á Facebook.

GM kom með splunkunýjan Vauxhall Viva og Vauxhaull Vector. Við sem erum fædd um miðjan sjöunda áratuginn munum eftir Vivu, einfaldur og frekar ljótur fólksbíll sem Véladeild Sambandsins seldi uppi í Ármúla 3. Opel kom með nýjan Kadett í tveggja dyra útgáfu og station bíl.

Opel Olympia var kynntur og var bíll á milli Kadett og hins stærri Rekord.

Opel Kadett er eftirminnilegur bíll. Kom bæði í 3 dyra station og sport-útfærslu. En myndin er af mjög svipuðum bíl sem hét Olympia.

General Motors á fullu

Gjörbreyttar gerðir af Chevelle voru settar á markað og voru þær mestu frá því árið 1964. Breytingarnar fólust að mestu í yfirbyggingu bílanna og voru þeir fáanlegir með V6 og V8 vélum; 140-350 hestafla.

Fimm tegundir gangskiptinga voru auglýstar með nýjum Chevelle og Chevy II. Menn héldu sig við „hesta samlíkinguna” á þessum árum.

Chevelle voru flottir bílar árið 1968. Þessi bíll þróaðist út í það sem síðast var kallað Nova.

Chrysler umboðið Vökull var á þessum tíma í húsi Jóns Loftssonar við Hringbraut 121. Þar fengust AMC bílar og einnig Rambler.

Dodge Dart var kynntur sem sterkur, traustur og góður bíll. Fólk gat valið um 120 útgáfur bíla frá Chrysler.

Dodge Dart þóttu sportlegir og ansi kraftmiklir á sínum tíma.

Sveinn Björnsson í Skeifunni 11 kynnti Saab 1968 sem einn af best gerðu bílum heims. Ástæðan var sögð, framhjóladrif, tvöfalt bremsukerfi, burðarbitar í þaki og bólstrað mælaborð.

Saabinn var afar sérstæður bíll. Lyktaði skringilega, hljómaði skringilega en var samt flottur.

Hafrafell í Brautarholt 22 auglýsti nýju gerðirnar af Peugeot 404. Þeir eru sagðir sterkbyggðir, sparneytnir og háir frá vegi, með frábærum aksturseiginlekum og ódýrastir sambærilegra bíla.

Vinsælir sem leigubílar man ég. Mynd: Carinfo.

Mercedes vakti athygli

Ræsir flutti inn og seldi Mercedes-Benz. Árið 1968 kom athyglisverður bíll frá Mercedes en það var skutbíll á grind af 230 S.

Þessi bíll var sagður hafa vakið óskipta athygli. Hægt var að fá 200 og 230 sem skutbíl einnig.

Hekla auglýsti einfaldlega með stóru spurningarmerki. Getið þér gert betri bílakaup? VW 1200 kostar aðeins 136.000 krónur.

Maður sleppir ekki að birta mynd af Bjöllu ef maður kemur því við. Þessi er árgerð 1968. Reyndar eiga allar myndir að vera af 1968 módelum í þessari grein.

Albert Guðmundsson einn þekktast knattspyrnumaður Íslands fyrr og síðar tryggði sér að sjálfsögðu umboð fyrir Renault meðan hann spilaði knattspyrnu í Frakklandi.

Árið 1968 kom Renault 4 með fjögurra gíra kassa.

Ótrúlega sjarmerandi bíll. Frakkar höfðu lag á því að framleiða frekar stóra og einfalda bíla með afskaplega litlum vélum.

Þið fáið meira fyrir peninginn ef þið kaupið Skoda, var slagorð Skoda umboðsins árið 1968. Skoda 1000 MB þótti afar lipur og góður bíll og var hælt fyrir akstur á malarvegum og var eini bíllinn í sínum stærðarflokki með sérstakri grind.

Fiat þótti sterkur

Davíð Sigurðsson var með einkaumboð fyrir Fiat. Árið 1968 auglýsir Davíð Fiat 1100 R. Sá bíll þótti sterkur og hagkvæmur. Rúmgóður, glæsilegur og traustur fjölskyldubíll. Til ryðvarnar er sérstaklega vandað [og ekki veitti af innsk. blm] og er trygging fyrir minna viðhaldi og betri bíl um lengri tíma.

Kynnist Fiat – og Fiat verður valið á nýju bifreiðinni yðar, sagði Davíð í lokin.

Fiat 1100 þótti afburðagóður bíll, sterkur og endingargóður.

Kaninn klikkaði ekki

Það var svo Rambler Rebel sem Jón Loftsson kynnti ásamt Rambler Ambassador. Rebelinn var nú  með al-samstilltum gírkassa. Nánari upplýsingar um þessa Rambler-bíla ásamt upplýsingum um aðrar Rambler tegundir veitum vér fúslega, segir Jón Loftsson. Komið, hringið eða skrifið – og hana nú.

Flottur Javelin

Að endingu segjum við hér frá auglýsingu Jóns Loftssonar á AMC Javelin. Þetta var kallaður 2 dyra fjölskyldu og sportbíll í senn. Verðið verður líklega frá 360.000. Þá er miðað við að bíllinn sé þriggja gíra beinskiptur og gírkassinn al-samstilltur í alla gíra.

Að sjálfsögðu má líka fá gegn aukagjaldi: sjálfskiptingu, gólfskiptingu vökvastýri, aflhemla og m.fl. Vélin er 6 cyl. 145 hestöfl. Hægt er líka að fá Javelin 8 cyl. 200, 225 eða 280 hestöfl.

Í febrúar á næsta ári (1969) verður hægt að fá bíllinn með um það bil 340 hestafla vél.

AMC Javelin. Hann var kynntur sem fjölskyldubíll árið 1968.

Myndir héðan og þaðan af vefnum.

Fyrri grein

Yugo litli fer til Ameríku

Næsta grein

Misvondar afsakanir og hraðasektir

Pétur R. Pétursson

Pétur R. Pétursson

Vefstjóri og blaðamaður

Svipaðar greinar

Af hverju er merkið á Audi fjórir hringir?

Af hverju er merkið á Audi fjórir hringir?

Höf: Jóhannes Reykdal
23/06/2025
0

Audi var stofnað árið 1909 en fékk ekki fjóra hringi fyrr en árið 1932. Við skoðum söguna… Ef einhver segði...

Ford Pinto, elskaður og hataður

Ford Pinto, elskaður og hataður

Höf: Pétur R. Pétursson
08/04/2025
0

Ford Pinto var svar Ford Motor Company við vaxandi samkeppni frá japönskum og evrópskum smábílum á sjöunda áratugnum. Pinto var...

1969 BMW 2000CS – klassískur kúpubakur!

Höf: Pétur R. Pétursson
09/03/2025
0

BMW 2000CS er hluti af „Neue Klasse“ línunni frá BMW og var framleiddur frá árinu 1965 til 1969. Þetta var...

Hvað er „sportjeppi“? Við höfum svarið … eða þannig

Hvað er „sportjeppi“? Við höfum svarið … eða þannig

Höf: Jóhannes Reykdal
16/02/2025
0

En umræðurnar halda áfram..... Ein umdeildasta umræða í bílaheiminum er um skilgreininguna á SUV („Sport Utility Vehicle”) sem við hér...

Næsta grein
Misvondar afsakanir og hraðasektir

Misvondar afsakanir og hraðasektir

Umræður um þessa grein

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Bílaheimurinn

Novan var vinsæl á rúntinum í denn

29/06/2025
Bílaframleiðsla

Nýi Recon-jeppinn frá Jeep er að mótast sem Wrangler rafbílanna

28/06/2025
Bílaheimurinn

Kia EV3 GT-Line frumsýndur á Íslandi

25/06/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.