Fimmtudagur, 9. október, 2025 @ 16:00
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Hraðhleðslur spretta upp sem gorkúlur

Pétur R. Pétursson Höf: Pétur R. Pétursson
14/05/2024
Flokkar: Fréttatilkynning, Tækni
Lestími: 4 mín.
292 3
0
141
DEILINGAR
1.3k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Tvær hraðhleðslur opna á Þórshöfn.

Brimborg Bílorka opnar tvær hraðhleðslustöðvar á Þórshöfn sem gerir rafbílanotendum kleift að ferðast áhyggjulaust alla leið á Langanes. Stöðvarnar eru góð viðbót í vaxandi net hraðhleðslustöðva á landinu sem auðveldar rafbílanotendum lífið. Hraðhleðslustöðvar hafa sprottið upp eins og gorkúlur víðsvegar um landið undanfarin ár og eru nú 147 talsins (skv. plugshare.com)  með hátt í 400 hraðhleðslutengi sem hefur gert ferðalög á rafbílum sífellt þægilegri. Norðausturhornið hefur setið á hakanum en nú verður breyting á.

Uppsetning hraðhleðslustöðva Bílorku er í samstarfi við Gistiheimilið Lyngholt á Þórshöfn. Önnur þeirra er sett upp við ENN 1 SKÁLANN og hin er við gistiheimilið sjálft. Sú stöð mun einnig nýtast viðskiptavinum nýs veitingastaðar Holtið Kitchen Bar sem opnar í sumar í félagsheimili staðarins og mun laða að enn fleiri ferðamenn til Þórshafnar.

Brimborg Bílorka hefur sett upp 12 hraðhleðslustöðvar á síðustu 12 mánuðum og meðal annars þá öflugustu á landinu sem er 600 kW stöð í Reykjanesbæ sem getur hlaðið 8 rafknúin ökutæki í einu.

Markmið Brimborgar Bílorku er að efla samkeppni á rafhleðslumarkaði og bjóða framúrskarandi þjónustustig sem er það sem af er ári 99,4%.

Auðveld uppsetning, lægra hraðhleðsluverð

Stöðvarnar á Þórshöfn eru sérlega hentugar fyrir minni þéttbýlisstaði þar sem þær eru auðveldar í uppsetningu og krefjast ekki mikillar orku og því nýtist umframorka á uppsetningarstað.

Sökum þess er hraðhleðsluverðið mjög hagstætt. Hvor stöð er 30 kW með einu CCS tengi og getur stöðin bætt við um 100 km af drægni á 40 mínútum fyrir meðalstóran rafbíl.

Þegar umferð rafbíla eykst á svæðinu er síðan hægt að fjölga stöðvum eða stækka þær.

N1 á Þórshöfn.

Einfalt er að hefja hleðslu í hraðhleðslustöðvunum með e1 appinu eða hleðslulykli því tengdu og appið er einnig notað til að greiða fyrir hleðsluna. Í e1 appinu er að finna verðskrá fyrir hleðslustöðvarnar, staðsetningu og allar hleðsluupplýsingar.

Lægri ferðakostnaður á rafbíl og betri nýting á raforkukerfinu

Rafbílar eru einstaklega hagstæðir í rekstri enda nýta þeir orkuna mun betur en aðrar gerðir bíla, íslenska raforkan er ódýrari og svo er viðhaldskostnaður rafbíla minni.

Rafbílar geta verið allt að 76% ódýrari í rekstri á ársgrundvelli sem lækkar ferðakostnað innlendra sem erlendra ferðamanna og hjálpar til að dreifa ferðamönnum betur um landið.

Gistiheimilið Lyngholt á Þórshöfn.

En rafbílar eru ekki eingöngu ódýrari í rekstri heldur losa þeir engar gróðurhúsalofttegundir né mengandi efni við aksturinn. Þeir auka nýtingu raforkukerfisins þar sem þeir nýta lausa umframorku bæði yfir daginn og nóttina og ekki síður á sumrin þegar orkunotkun Íslendinga er í lágmarki.

Það eflir orkuöryggi Íslands og eykur arðsemi flutnings- og dreifikerfis raforku sem nýta má til að styrkja það enn frekar.

Hraðhleðslustöðvarnar opna norðausturhornið fyrir rafbílanotendum

Tilkoma stöðvanna mun ýta undir rafbílaumferð á svæðið en hingað til hafa rafbílanotendur, innlendir sem erlendir ferðamenn, veigrað sér við að ferðast á norðausturhornið vegna skorts á hleðslumöguleikum.

„Þetta framfararskref sem beðið hefur verið eftir, er klárlega liður í því að auðvelda ferðamönnum að sækja svæðið heim. Þar sem sífellt fleiri Íslendingar kjósa að keyra um á rafbílum og bílaleigurnar bjóða meira úrval rafbíla til erlendra ferðamanna er ljóst að umferð rafbíla mun aukast og einnig á norðausturhornið.

Dreifing ferðamanna víðar um landið hefur jákvæð áhrif á ferðaþjónustuaðila og fyrirtæki í tengdri starfsemi.

Ferðaþjónusta á svæðinu er vaxandi grein en ferðamannatímabilið er þó enn tiltölulega stutt svona norðarlega og því skiptir hver ferðamaður máli“ segja Karen og Ólafur, eigendur Gistiheimilisins Lyngholts og rekstraraðilar ENN 1 SKÁLANS á Þórshöfn.

Fyrri grein

Augnakonfekt á fjórum hjólum

Næsta grein

Gjörsamlega tekinn í nefið!

Pétur R. Pétursson

Pétur R. Pétursson

Vefstjóri og blaðamaður

Svipaðar greinar

Nýr og alrafmagnaður Kia EV4 frumsýndur um land allt

Nýr og alrafmagnaður Kia EV4 frumsýndur um land allt

Höf: Pétur R. Pétursson
09/10/2025
0

Laugardaginn 11. október kl. 12-16 í sýningarsal Kia að Krókhálsi 13 og hjá umboðsaðilum Kia um land allt. Reykjavík, október...

Tesla kynnir stóra FSD uppfærslu sem endurspeglar akstursstíl þinn

Tesla kynnir stóra FSD uppfærslu sem endurspeglar akstursstíl þinn

Höf: Pétur R. Pétursson
08/10/2025
0

FSD stenur fyrir „full self driving” Útgáfa 14.1 er stærsta FSD uppfærsla í eitt ár FSD 14.1 hefur einnig nokkrar...

Hvaða bílaframleiðendur eru að koma aftur með gömlu góðu hnappana?

Hvaða bílaframleiðendur eru að koma aftur með gömlu góðu hnappana?

Höf: Pétur R. Pétursson
05/10/2025
0

Rannsóknir benda til þess að neytendur séu óánægðir með snertivirkni í stýri og snertiskjástýringar. En það er allt að breytast....

2026 Volvo EX90 fær hraðari hleðslu og snjallari öryggistækni

2026 Volvo EX90 fær hraðari hleðslu og snjallari öryggistækni

Höf: Pétur R. Pétursson
01/10/2025
0

Volvo hefur opnað pantanabækurnar fyrir 2026 árgerðina af EX90. Flaggskip rafjeppa vörumerkisins fær nokkrar lykiluppfærslur fyrir nýju árgerðina. Þökk sé...

Næsta grein
Gjörsamlega tekinn í nefið!

Gjörsamlega tekinn í nefið!

Segðu okkur hvað þér finnst! Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Bílasýningar

Nýr og alrafmagnaður Kia EV4 frumsýndur um land allt

09/10/2025
Bílaframleiðsla

Kia Soul hættir framleiðslu eftir árgerð 2025

08/10/2025
Bílaheimurinn

Tesla kynnir stóra FSD uppfærslu sem endurspeglar akstursstíl þinn

08/10/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.