Audi RS e-tron GT ice race edition

155
DEILINGAR
1.4k
SMELLIR

  • Eintak nr. 22 af 99 til sýnis hjá Heklu um helgina

Audi fagnar 40 ára afmæli Audi Sport Gmb með viðhafnarútgáfu af Audi RS e-tron GT Ice Race edition.

Aðeins voru framleidd 99 eintök í heiminum og er eintak nr. 22 nú ;l sölu á Íslandi.

Mikil eftirspurn var eftir þessari sérstöku útgáfu en till samanburðar verða eingöngu 4 bílar í boði á Englandi.

Audi RS e-tron GT Ice race edition er innblásinn af árlega GP Ice Race kappakstrinum sem haldinn er nálægt Zell am See í austurrísku Ölpunum. Hönnunarteymi Audi segir að sláandi litur bílsins feli í sér vísun í snjókristalla og ísilögð vötn. Audi hringirnir fjórir sem eru einkennismerki Audi hafa verið gerðir hvítir, en svörtu 21 tommu álfelgurnar standa upp úr yfirbyggingunni sem er innblásin er af snjólandslagi. Þessi 598 hestafla ofurbíll er alrafmagnaður, 3,3, sekúndur í hundraðið og dregur allt að 495 km á hleðslunni.

Bíllinn verður ;l sýnis í sýningarsal Audi, Laugavegi nk. laugardag 23. mars á milli kl. 12 og 16 og er aðeins um þennan eina sýningardag að ræða.

Í sýningarsalnum verða einnig aðrar bifreiðar frá Audi má þar nefna Audi TT, Audi GT og Audi Q8 etron.

Audi RS e-tron GT – Ice race edition

Afkastageta

Orkugjafi Rafmagn

Afköst (Hö/Nm) 598/830

Hröðun 0-100 3,3 sek

Hámarkshraði 250

Driftegund Fjórhjóladrif

Hleðsludrægni

Rafhlaða 84 kWh

Drægni allt að 495 (skv. WLTP)

Notkun (kWh/100km)* 19,8

Hleðslugeta (AC/DC) 11 kW / 270 kW

Hleðslutími DC í 80% 23 mín

Hleðslutími AC 9 klst og 15 mín

Búnaður

Audi exclusive innrétting

Sérstök Ice Race hönnun

21″ fimm arma svartar álfelgur

360° myndavél

Ambient innilýsing

Bang & Olufsen hljóðkerfi

Carbon állistar í innréttingu

Matrix aðalljós með (dynamic) stefnuljósum

Mælaborð úr Nappa leðri

Nudd og kæling í framsætum

Rafstýrð sportsæti með minni í ökumannssæti

Sjálfvirkur hraðastillir með hraðatakmarkara og beygjuaðstoð

Sjónlínuskjár (e. Head up Display)

Sportstýri í Alcantara áklæði með aðgerðarhnöppum

Svartur útlitspakki

Varmadæla

Vídeó um Audi RS e-tron GT Ice Race edition.

https://www.audimedia.tv/en/videos/video/audi-rs-e-tron-gt-ice-race-edition-trailer-6624

(Fréttatilkynning frá Heklu)

Svipaðar greinar