Miðvikudagur, 8. október, 2025 @ 16:48
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Kia frumsýnir brautryðjandi Kia EV9

Jóhannes Reykdal Höf: Jóhannes Reykdal
09/11/2023
Flokkar: Bílaframleiðsla, Bílaheimurinn, Fréttatilkynning
Lestími: 3 mín.
323 25
0
166
DEILINGAR
1.5k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Rafjeppinn Kia EV9 verður frumsýndur næstkomandi laugardag kl 12-16 í sýningarsal Kia að Krókhálsi 13.

Kia EV9 er byggður á hinum byltingarkennda E-GMP undirvagni (Electric Global Modular Platform) sem veitir kraftmikil afköst. Drægni EV9 er allt að 522 km samkvæmt WLTP-staðli.

Með ofurhraðri hleðslugetu er hægt að fylla á EV9-rafhlöðuna og ná 249 km drægni á um það bil 15 mínútum. EV9 kemur fyrst um sinn í GT-Line útfærslu sem er fjórhjóladrifinn og skilar hröðun frá 0-100km/klst á einungis 5,3s.

Þessi stóri og stæðilegi rafjeppi er með sæti fyrir sex eða sjö manns. Útlitið er djarft og nútímalegt en á sama tíma heldur bíllinn sínum sérkennum.

Framhlið EV9 einkennist af skýrum línum og hreinum flötum með traustu, skýru og sportlegu yfirbragði. Hið einkennandi „stafræna tígrisandlit“ gefur bílnum sérstæðan svip sem er undirstrikaður með ljósagrilli með stafrænu mynstri og lóðréttum, framúrstefnulegum aðalljósum.

Stafræna tígrisandlitið er einnig búið tveimur klösum af kassalaga ljósum við hlið beggja aðalljósanna. Sérstök „stjörnukorta“ LED-dagljósin á EV9 mynda lifandi lýsingarmynstur sem mun einkenna stafrænt tígrisandlit Kia á rafbílum fyrirtækisins í framtíðinni, auk þess að skila sérlega magnaðri lýsingarupplifun.

Rafjeppinn er með 3.100 mm hjólhaf og kemur á sportlegum 21” felgum. Heildarlengd bílsins er 5.010 mm, á breiddina er hann 1.980 mm og 1.755 mm á hæðina.

Í bílnum er einnig að finna brautryðjandi og sjálfbær efni þróuð af Kia. Má þarf nefna lífplast, endurunnið PET-plast eða fiskinet, lífræn málning og lífrænn pólýúretansvampur. Öll þessi efni verða til sýnis í sýningarsal Kia að Krókhálsi.

Sérstök slökunarsæti

Kia EV9 er með þremur sætaröðum. Í fyrstu og annarri sætaröð eru sérstök slökunarsæti sem tryggja þægilega hvíldarstöðu. GT-Line útfærslan er 6 manna sem skilar sér í frábæru aðgengi í þriðju sætaröð sem hentar einstaklega vel fyrir fólk sem þarf gott aðgengi t.d. vegna barnabílstóla.

Næsta sumar er Earth útgáfa bílsins væntanleg og munu tækniupplýsingar liggja fyrir þegar nær dregur.

Sú útgáfa mun hafa bekk í annari sætaröð í stað stóla og því vera fyrir sjö farþega.

Brautryðjandi nýsköpun

Kia hefur á síðustu árum sópað að sér fjölda verðlauna fyrir einstaka bíla, hönnun og nýsköpun. Framleiðandinn hefur veitt mikinn innblástur á heimsvísu með nýsköpun og þróun á rafbílaflota sínum og komst m.a. á lista TIME yfir áhrifamestu fyrirtækin í Bandaríkjunum 2023.

Það hefur því mikil eftirvænting fylgt komu nýs flaggskips framleiðandans, EV9, til landsins sem er loksins frumsýndur á laugardaginn. Þar að auki er einstaklega gaman að sjá að auglýsingaherferð Kia EV9 var tekin upp á Íslandi. Engin furða þar sem bíllinn hentar íslenskum aðstæðum mjög vel.

(fréttatilkynning frá Öskju / Kia)

Fyrri grein

Fjórða kynslóð Swift hefur verið sýnd í Japan

Næsta grein

Margir spenntir að skoða nýja Kia EV9

Jóhannes Reykdal

Jóhannes Reykdal

Ritstjóri og blaðamaður

Svipaðar greinar

Kia Soul hættir framleiðslu eftir árgerð 2025

Kia Soul hættir framleiðslu eftir árgerð 2025

Höf: Jóhannes Reykdal
08/10/2025
0

Eftir meira en áratug á markaðnum er Kia Soul að hverfa á braut. Kia hefur staðfest að framleiðslu Soul lýkur...

Tesla kynnir stóra FSD uppfærslu sem endurspeglar akstursstíl þinn

Tesla kynnir stóra FSD uppfærslu sem endurspeglar akstursstíl þinn

Höf: Pétur R. Pétursson
08/10/2025
0

FSD stenur fyrir „full self driving” Útgáfa 14.1 er stærsta FSD uppfærsla í eitt ár FSD 14.1 hefur einnig nokkrar...

Hugmyndabíllinn Dacia Hipster

Hugmyndabíllinn Dacia Hipster

Höf: Jóhannes Reykdal
07/10/2025
0

Sagður endurskapa smárafbílinn þar sem ESB íhugar nýjar reglur um smábíla MEUDON, Frakkland — Dacia segir að Hipster hugmyndabíllinn þeirra,...

Kíkti í BL um helgina og sá lúxusbíl á lægra verði en keppinautanna

Höf: Pétur R. Pétursson
05/10/2025
0

Renault Rafale var frumsýndur á Íslandi hjá BL um helgina og á, án efa eftir að vekja athygli fyrir að...

Næsta grein
Margir spenntir að skoða nýja Kia EV9

Margir spenntir að skoða nýja Kia EV9

Segðu okkur hvað þér finnst! Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Bílaframleiðsla

Kia Soul hættir framleiðslu eftir árgerð 2025

08/10/2025
Bílaheimurinn

Tesla kynnir stóra FSD uppfærslu sem endurspeglar akstursstíl þinn

08/10/2025
Bílaframleiðsla

Hugmyndabíllinn Dacia Hipster

07/10/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.