smart kominn í Brabus ofurútfærslu

144
DEILINGAR
1.3k
SMELLIR

  • Nýr Pulse smart #1 er mættur til leiks sem og Brabus ofurútfærsla frá bílamerkinu sem er samstarfsverkefni Mercedes-Benz og kínverska bílaframleiðandans Geely.

Uppgefin drægni í blönduðum akstri á hinum fjórhjóladrifna smart #1 Pulse er 400 km og Fer úr 0-100 á aðeins 4,5 sekúndum. Afköstin eru því afar góð.

Hleðslan er 10-80% á undir 30 mín á hraðhleðslustöð. Brabus útfærslan er enn aflmeiri en bíllinn er eingungis 3,9 sekúndur úr 0-100.

19 tommu álfelgur og sportleg smáatriði. Í Brabus er ekkert til sparað og er hvergi slegið af fágunarkröfum. Í Brabus útgáfu smart er hágæða Beats by Dre hljómkerfi.

smart #1 Pulse.

Brabus útfærslan er enn aflmeiri en bíllinn er eingungis 3,9 sekúndur úr 0-100 km klst.

Með viðbættum línum fjölgar enn frekar litaúrvali smart, en bílarnir koma í afar skemmtilegum litum sem hægt er að stilla upp á vefsýningarsal Öskju. Báðar nýju útfærslurnar af smart eru með CyberSparksLED+ ljós, stemningslýsingu að innan og panoramic glerþak sem eru einkennandi fyrir bílinn.

Í smart eru óaðfinnanlegir tengimöguleikar sem hægt verður að stýra með Hello smart appinu fyrir lok október.

Í smart eru einnig áreiðanleg og verðlaunuð öryggis- og akstursaðstoðarkerfi, en bíllinn hlaut hæstu mögulegu einkunn í öryggisprófunum NCAP fyrir Evrópumarkað.

Þess má geta að smart #1 var valinn besti borgarjepplingurinn á rafbílaverðlaununum What Car? Dómararnir voru hrifnir af rúmgóðu innanrými, framúrskarandi smíði, mýkt í akstri og hraðri hleðslu bílsins.

(fréttatilkynning frá Öskju)

Svipaðar greinar