Fyrsti framleiðslu bíll af gerðinni Ford Mustang var oft nefndur „1964.5” gerðin vegna þess að hann var kynntur um mitt ár 1964. Ford Mustang var byltingarkenndur bíll sem gegndi mikilvægu hlutverki við að skilgreina sportbílinn.
Hann er afar sérstakur er bíll sem stendur á stalli sem hluti af bandarískri bílasögu.

Bíll á sextugsaldri
Stefán Magnússon keypti sér Mustang árgerð 1964.5 fyrir um tuttugu árum í Bandaríkjunum. Hann var búinn að finna annan bíl áður sem hann reyndi kaup á í gegnum ebay.
Sá bíll var ekki falur enda var ákveðinn kaupandi kominn að bílnum. Sá ætlaði að gefa eiginkonunni hann í jólagjöf. Hann upplýsti Stefán um að það væri alveg sama hversu hátt hann byði, hann myndi bara yfirbjóða.

Læknir sem hafði engan áhuga á bílum
Þá fann Stefán þennan bíl sem um ræðir, rauðan að lit og nær fullkomlega uppgerðan.
„Það var læknir sem átti bílinn en hann hafði reyndar lítinn áhuga á honum, var erfðagripur sem faðir eða tengdafaðir gerði upp á sínum tíma.
Þegar ég fæ bílinn er hann búinn að standa í nokkurn tíma og bar þess alveg merki, var skítugur upp fyrir þak”, segir Stefán.

Kraftur í kögglum
Bíllinn er með 289 (289 cid) vélinni, tjúnnaðri upp í 302 (302 cid) en Steðjanúmerið segir einmitt til um vélargerð og vélarstærð V302 en margir halda eflaust að þessi bíll hafi einhvern tímann alið sinn tíma í Vestmannaeyjum – svo er reyndar ekki.

Stefán setti síðan bílinn upp á flutningabíl og flutti hann frá miðríkjum Bandaríkjanna yfir til New York þaðan sem hann kom síðan til landsins með flugi.
Markaði tímamót
Ford Mustang var formlega kynntur 17. apríl 1964 á heimssýningunni í New York.
Mustanginn var settur á framleiðslu til að fylla upp í gap á markaði fyrir sportlegan og hagkvæman bíl sem höfðaði til breiðs hóps viðskiptavina, sérstaklega yngri kynslóðarinnar.

Einfaldur bíll fyrir yngra fólk
Mustang var fyrst boðinn í tveimur gerðum: 2 dyra kúpubakur með harðtoppi og blæjuútgáfa. Hann var byggður á fyrirferðarlitlum undirvagni sem deildi nokkrum íhlutum með Ford Falcon, en Mustang var með áberandi og sportlega hönnun.
Hann var með langt húdd og stuttan afturenda, sem gaf honum kraftmikla og sportlega ásýnd.
Val um saklausan snattara eða öskrandi villidýr
Þeir sem keyptu sér Mustang árið 1964 gátu valið sér bílinn með mismunandi vélum, skiptingu og innréttingu. Grunnvélin var 170 kúbika línu-sexa, en vinsælasta og eftirminnilegasta vélin var 260 kúbika V8.
Á bílum sem framleiddir voru á síðari hluta 1964 varð öflugri 289 kúbika, V8 fáanleg sem valkostur.







Snjöll markaðssetning
Mustanginn var markaðssettur í stórri og mikilli auglýsingaherferð sem fanga átti ímyndunarafl almennings.
Hann var kynntur sem „unglegur” og spennandi bíll sem bauð upp á bæði kraft og stíl.
Kynningunni fylgdi sú snjalla markaðsstefna að sýna Mustang í kvikmyndum, sjónvarpsþáttum og jafnvel taka þátt í Indianapolis 500 sem keppnisbíll.

Viðbrögðin við Mustang voru yfirþyrmandi. Ford spáði upphaflega sölu á um 100.000 eintökum fyrsta árið, en þeir seldu yfir 400.000 eintök af fyrstu árgerð bílsins, sem gerir Mustaniginn einn af áhrifameiri bílum sögunnar.
Ótrúleg velgengni
Árangur í sölu fyrstu árgerðar Mustang lagði grunninn að viðvarandi arfleifð. Mustang er til í sex kynslóðum og heldur áfram að vera vinsæll og þekktur bíll um allan heim. Bíllinn hefur gengist undir fjölmargar uppfærslur í gegnum árin en þrátt fyrir það heldur hann samt kjarna upprunalegu 1964.5 gerðarinnar – samblandi af stíl, afköstum og hagkvæmni.
Ford Mustang 1964.5 er oft talinn tákn um nýsköpun og getu bandaríska bílaiðnaðarins til að búa til bíla sem ríma við óskir og væntingar neytenda. Hann markaði upphaf tímabils smærri sportara og setti óafmáanlegt mark á sögu bílaframleiðslunnar.
Vélar og búnaður
Mustanginn kom með 170 kúbika línu-sexu: Þetta var valkostur fyrir þá sem vildu bara „lítinn og nettan” sportara. Þetta var 2.8 lítra sex strokka vél sem framleiddi um 101 hestöfl og 156 lb-ft tog. Þó að hann væri ekki ekkert sérlega kraftmikill, eyddi hann frekar litlu og hentaði ágætlega til daglegrar notkunar.
260 kúbika V8: Þetta var fyrsti V8 kosturinn en þetta var talsvert kraftmeiri vél. Þetta var 4.3 lítra V8 vél sem framleiddi um 164 hestöfl og 258 lb-ft tog. Það var líflegri kostur fyrir þá sem voru að leita að jafnvægi milli krafts og skilvirkni.
289 kúbika V8: Þessi vél var kynnt síðar í sömu árgerð og varð ein vinsælasta vélin sem Mustang kom með. Hún fékkst í mismunandi útfærslum, allt frá 200 og upp 271 hö. 289 kúbika V8 vélinn bauð upp á meiri hröðun og afköst, sem gerir hana að einni vinsælustu vélinni.
1964.5 Mustang var seldur með í huga að hægt væri til að sérsníða bílinn. Það gerir kaupendum kleift að raða saman ákveðnum búnaði sem gera bílinn sérstakan fyrir þann sem kaupir.

Grunngírskiptingin var þriggja gíra beinskipting sem bauð upp á einfalda og þægilega akstursupplifun.
Afkastameiri valkostur var síðan fjögurra gíra beinskiptingin gerði kleift að hafa meiri stjórn á aflinu.
Fyrir þá sem vildu sjálfskiptingu var þriggja gíra sjálfskipting í boði fyrir mýkri og þægilegri akstur.
Mustanginn var fáanlegur með blæju, sem gerir ökumönnum ökumönnum kleift að njóta frelsisins sem aflið bauð uppá.
Venjulegur kúpubakur/harðtoppur var með stálhúsi og nokkuð hefðbundinn en þaklínan var frekar lág. Bíllinn hans Stefáns er einmitt af þeirri gerð.
Hægt var að panta í bílinn aukabúnaði sem Ford kallaði „rallýpakka”. Þessi aukabúnaður innihélt viðbótarmæla eins og snúningshraðamæli og klukku, festa á stýrissúluna og sýndu ökumanninum meiri upplýsingar.
Pony innréttinga pakkinn bauð upp á sérstaka innréttingu, áklæði og smáatriði sem auka átti lúxus í innréttingunni.
Loftkæling var í boði sem valkostur til að bæta þægindi, eiginleiki sem var enn tiltölulega sjaldgæfur í mörgum bílum á þeim tíma.
AM útvarp var í boði sem valkostur til að bjóða upp á afþreyingu.
Bíll Stefáns vekur óskipta athygli á Krúser rúntum og ferðamenn, sérstaklega Bandaríkjamenn laðast mjög að bílnum þegar hann hefur verið á bílaplaninu hjá Hörpunni í sumar.
Umræður um þessa grein