Hugmyndabíllinn Fiat Centoventi lætur viðskiptavinina um að þróa bílinn
Nýtt í Genf: – Centoventi hugmyndabíllinn frá Fiat lýsir hugmyndum um að „gera rafmagns hreyfanleika aðgengilegan öllum“, sagði Oliver Francois, stjórnandi Fiat við kynninguna á bílnumí Genf.
Centoventi nafnið, sem þýðir „120“ á ítölsku, vísar til 120 ára sögu Fiat vörumerkisins. Meginhugmyndin á bak við rafknúna hugmyndabílinn, sem er með innblástur frá hinum upprunalega Panda sem kom á markað árið 1980, er sveigjanleikinn til að gera það á viðráðanlegu verði.
Eitt helsta dæmið er rafhlaðan sjálf. Grunnútgáfan af Centoventi er með 100 km drægni.
En viðskiptavinurinn gæti bætt við allt að fjórum viðbótar rafhlöðueiningum til að ná 500 km fjarlægð. Valið stendur líka til boða eftir að bíllinn hefur verið keyptur.
Centoventi er með „gagnvirkan aftruenda“ sem myndi leyfa eigandanum að selja auglýsingarými eða auglýsa ökutækið til leigu. Þá gæti notandinn haft möguleika á að setja í bílinn síma eða spjaldtölvu í stað þess að hafa skjá.
„Við höfum útbúið bílinn þannig að viðskiptavinurinn getur ákveðið,“ sagði Francois við kynningu á bílnum á bíalsýningunni í Genf á þriðjudaginn. Centoventi hefur aðeins eitt einkennandi útlit en val á fjórum mismunadi þökum, brettum og öðrum ytri hlutum.
Francois hrósaði „nýjung hvað varðaði viðskiptamódelið“, sem felur í sér samstarf við Mopar, aukahlutadeild Fiat Chrysler Automobiles. Hins vegar sagði hann, að bíllinn yrði aðeins framleiddur ef viðbrögð viðskiptavina myndu staðfesta að þetta væri eitthvað sem þeim líkaði. Hann gaf enga tímasetningu hvenær ákvörðun yrði tekin.
Francois sagði að Centoventi væri ökutæki með aðaláherslu á Evrópu. Hann vildi ekki segja hvort þessi bíll gæti hugsanlega komið í stað Panda í Evrópu, en sá bíll er farinn að eldast í framboði Fiat..
Nýr Fiat 500 á næsta ári
Francois tilkynnti einnig í Genf að næsta kynslóð af afturhjóladrifinum Fiat 500 „hatchback“ verði sýnd á sýningunni í Genf á næsta ári.
Smábílarnir Fiat 500 og Panda eru meira en helmingur af sölu Fiat í Evrópu. Salan á 500 var 188.332 eintök árið 2018, sem er lítillega niður frá 189.120 eintökum árið 2017, en salan á Panda lækkaði um 10 prósent í 167.426.
Mesti samdráttur Fiat var aðallega á heimamarkaði sínum á Ítalíu – lækkaði um 20 prósent, í 323.342 frá 402.430, sem er meginsamdráttur vörumerkisins í Evrópu. Hluti af samdrættinum á Ítalíu kemur frá vísvitandi stefnu um að draga ú sölu til aðila eins og bílaleiga.



