50 ára afmæli Porsche Design

136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR

50 ára afmæli Porsche Design

  • Porsche sýnir takmarkaða framleiðslu á 911 Edition 50 ára Porsche Design

Það er alltaf gaman að halda upp á afmæli – og það ætla þeir svo sannarlega að gera hjá Porsche í Þýskalandi

Sérútgáfa byggð á Targa GTS hefur verið smíðuð til að fagna 50 ára afmæli Porsche Design og takmarkast við 750 bíla, sem kosta litlar 25 milljónir króna stykkið.

Porsche hefur afhjúpað þennan nýjan 911 Targa GTS í takmörkuðu útlagi, sem er hannaður til að fagna 50 ára afmæli lífsstílsarms merkisins, Porsche Design.

Hann er kallaður 911 Edition 50Y Porsche Design; aðeins 750 bílar verða smíðaðir og verð í Bretlandi, svo dæmi sé tekið, verður frá 144.360 pundum.

Litasamsetningin á sérútgáfu bílsins er til minningar um Chronograph I armbandsúrið frá 1972 og Porsche gefur út (í takmörkuðum fjölda) útgáfu af klukkunni ásamt nýju gerðinni.

Armbandsúrið liggur hér á mælaborðinu við hliðina á klukku bílsins, sem er líka í gömlum stíl. 911 Edition 50Y er svartmálaður og er með miðjulæstari álfelgur sem eru satíngráar.

Eins og allar 911 GTS gerðir er bíllinn búinn SportDesign bodykit Porsche, sem inniheldur meira áberandi framstuðara og endurhannaðan afturenda, með númeraplötunni hærra en venjulega.

Dökka þemað heldur áfram með svörtum bremsuklossum ásamt gráum „Porsche Design“ merkingum á hlið bílsins.

Dökkgrái veltiboginn á Targa GTS er enn á sínum stað og Edition 50Y skartar „Porsche Design 50 ára“ afmælismerki á afturlokinu.

Að innan er sérútgáfan með svörtu leðuráklæði og „retro“ Sport-Tex skreytingum frá Porsche á sætunum og sérsniðinni klukku, sem hluta af staðlaða Sport Chrono pakkanum.

Grá skífa, rauður sekúnduvísir og Porsche hönnunarmerki aðgreina hana frá staðlaða hlutnum.

Edition 50Y er með tveggja forþjöppu sex strokka boxermótor sem skilar 473 hestöflum. Aflið fer í gegnum átta gíra PDK gírkassa og fer bílinn frá 0-100 km/klst á 3,5 sekúndum.

Hámarkshraði er yfir 300 km/klst og viðskiptavinum á Bretlandi verður boðið að kanna þessa frammistöðumöguleika í upplifunarmiðstöð Porsche í Silverstone.

911 Edition 50Y Porsche Design er til sölu núna og til afhendingar í apríl.

(heimasíða Porsche og frétt á Auto Express)

Svipaðar greinar