Laugardagur, 28. júní, 2025 @ 23:48
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Þær unnu keppnina á Jeep Wrangler 4xe

Jóhannes Reykdal Höf: Jóhannes Reykdal
14/12/2021
Flokkar: Bílaheimurinn
Lestími: 5 mín.
269 17
0
137
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter
  • ? Rebelle-rallið er fyrsta „óbyggðarall“ kvenna í Bandaríkjunum.
  • Jeep sigraði í Rebelle Rally og rafmagnaðir Wrangler 4xe voru bæði í 1. og 2. sæti

Rebelle Rally er keppni þar sem saman fléttast ást á akstri og svakaleg áskorun í nákvæmnisakstri. Rallið, sem eingöngu er ætlað konum, tekur átta daga og eknir eru um 2500 kílómetrar í eyðimörk. Nánar tiltekið í Nevada og Kaliforníu.

Engir snjallsímar leyfðir!

Keppendur fá í hendur leiðarbók, og hjálpartækin á þessum löngu akstursleiðum eru, auk leiðarbókarinnar: kort af svæðinu og áttaviti. Engir farsímar, ekkert GPS og ekkert fúsk!

Reiknivélar eru á bannlista (nema þær allra einföldustu sem eingöngu leggja saman, draga frá, margfalda og deila).

Myndavélar þurfa að vera með galtóm minniskort þegar lagt er af stað. Annars eru þær á bannlista. Aðdráttarlinsur yfir 200mm eru sömuleiðis á listanum sem og sjónaukar. Jú, það er mun fleira á bannlistanum og því best að nefna þetta tvennt sem áður var minnst á og má hafa meðferðis (auk leiðarbókar): Kort af svæðinu og gamli góði áttavitinn.

Hér reynir ekki á það hver ekur hraðast allra, heldur reynir á hæfni keppenda á hinum ýmsu sviðum. Til dæmis hæfnina að meta fjarlægðir og ferðatíma út frá korti, ökutæki og veðri.

Jú og svo er það nú að rata um blessaða eyðimörkina!

Í ár kepptu fimmtíu lið (ökumaður og aðstoðarökumaður skipa hvert lið) og er það besta þátttaka frá upphafi, en fyrst var keppt í Rebelle Rally árið 2015.

Keppt er á jeppum, pallbílum og crossover-bílum í þessari keppni. Keppni sem er víst býsna erfið. Í ár hófst hún þann 7. október við Hoover-stífluna og lauk keppni 16. október í Imperial Sand Dunes (Glamis Dunes) í Kaliforníu.

Gaman er að greina frá því að þar hafa fjölmargar kvikmyndir verið teknar upp. Má þar einna helst nefna Lawrence of Arabia og Pit Stop. En það er nú önnur saga.

Engar sumarbúðir

Þetta rall, Rebelle Rally, er ekki neitt spaug. Síður en svo! Hér reynir á styrk, útsjónarsemi, samvinnu og seiglu keppenda. Ætli megi ekki líka segja að rallið sé ágætt mat á þeim ökutækjum sem því ljúka. Það reynir nefnilega verulega á ökutækið; getu þess og útbúnað. Áskoranirnar eru út um allt í landslaginu – og það í heila átta keppnisdaga.

Nú, þetta er ekki neitt slökunar- eða rólegheitarall. Þvert á móti: Hver keppnisdagur hefst klukkan fimm og þá er morgunverður framreiddur í tjaldbúðunum (meira um þær eftir andartak). Undirbúningsfundur hefst klukkan sex og fyrsti bíll ræsir klukkan sjö.

Á milli klukkan fimm og sjö síðdegis ljúka keppendur akstri hvern keppnisdag. Klukkan sjö um kvöldið er kvöldverður borinn fram og eftir klukkan tíu skal algjör þögn ríkja í tjaldbúðunum. Þá er líka næsta víst að konurnar hundrað eru steinsofnaðar.

Hvert lið „græjar“ sitt tjald en keppnishaldarar sjá um að „tjaldbúðirnar“ á hverjum stað séu með hreinlætisaðstöðu og öllu tilheyrandi.

Skilst manni að maturinn sem er innifalinn í keppnisgjaldinu sé ekki af verri endanum, en matreiðslumeistarinn er víst MIichelinstjörnukokkur að nafni Drew Deckman.

Sigur rafmagnsins

Jæja, nóg um umgjörð rallsins í bili. Vindum okkur í mál málanna: Bílana og sigurvegara keppninnar 2021!

Bílaframleiðendur eru mikilvægir bakhjarlar í keppni sem þessari. Alls komu tíu framleiðendur að keppninni í ár og þeir „koma inn af ólíkum ástæðum,“ sagði Emily Miller, stofnandi Rebelle Rally. Framleiðendurnir eru:

Jeep

Nissan

Porsche

Toyota

Kia

Mitsubishi

Ford

Honda

Rivian

Volkswagen

Hugmyndin var í upphafi sú að gefa konum tækifæri til að keppa í torfæruakstri á afskekktum stöðum, og það á nýjum og óbreyttum jeppum. Raf- og tvinnbílar eru nú á meðal kosta og í ár gerðist það magnaða!

Þær Nena Barlow og Teralin Petereit sem skipa liðið 4xEventure #129 , sigruðu rallið á Jeep Wrangler 4xe tengitvinnbíll. Bíllinn sá varð fyrsti rafbíllinn (tvinnbíllinn) til að ljúka og sigra Rebelle Rally og ekkert lið hefur í sögu keppninnar skorað jafn hátt og 4xEventure.

Ekki nóg með að sigurvegararnir hafi ekið Jeep Wrangler 4xe, því í öðru sæti var lið mæðgnanna Christine og Emily Benzie, Team Jeep Thrills, og hvernig bíl kepptu þær á? Jú, mikið rétt! Jeep Wrangler 4xe.

Annar Wrangler (ekki 4xe) skipaði þriðja sætið og þegar upp var staðið reyndist Jeep vera farkostur fimm liða af tíu efstu í þessari sjöttu keppni í eyðimörkinni.

„Þetta árið voru leiðirnar erfiðari en nokkru sinni, en  Wrangler 4xe gerði aksturinn auðveldan,“ sagði Nena Barlow hjá Team 4xEventure, sem sést hér vera að athuga aðstæður í keppninni. „Við brunuðum upp á sandöldur og um grjót í fjallahlíðum með auðveldum og skilvirkum hætti. Svo ekki sé minnst á að aldrei skorti bílinn afl eða drægni.”

Vildu sýna nýjan Wrangler 4xe í erfiðustu aðstæðum

„Jeep hefur stutt Rebelle rallið frá upphafi. Í ár þótti okkur spennandi að sýna nýjan Wrangler 4xe við erfiðustu torfæruaðstæður,“ sagði Jim Morrison, varaforseti Jeep. „Það segir allt sem segja þarf um lið okkar í keppninni og verkfræðiteymið að í ár sópaði Jeep Wrangler að sér verðlaunum.

Wrangler 4xe jeppar voru í fyrsta og öðru sæti yfir heildina, og hlaut fjölda viðurkenninga í ýmsum flokkum. Þetta tókst okkur án nokkurra einustu vandræða út allt rallið. Til hamingju allir sem voru í rallinu í ár.“

Hefur sigrað í fimm keppnum af sex

Jeep hefur nú borið sigur úr býtum í fimm af sex keppnum Rebelle rallsins til þessa. Búast má við harðari samkeppni bílaframleiðenda í samræmi við sívaxandi markaðshlutdeild öflugra 4×4 jeppa.

Án efa myndi Ford vilja sjá Bronco á verðlaunapallinum þar sem nýju lífi væri blásið í þann „gamla“. Jeep heyrði þó hófadyninn nálgast því í fjórða sæti rallsins voru þær Shelby Hall og Penny Dale á Ford Bronco.

Shelby Hall og Penny Dale voru í fjórða sæti á Ford Bronco Sport.

(M.a. byggt á fréttum af vef Rebelle Rally og Autoblog)

Fyrri grein

Hamilton: „Þessi náungi er *** klikkaður“

Næsta grein

Mögnuðustu húsbílar sögunnar

Jóhannes Reykdal

Jóhannes Reykdal

Ritstjóri og blaðamaður

Svipaðar greinar

Nýi Recon-jeppinn frá Jeep er að mótast sem Wrangler rafbílanna

Nýi Recon-jeppinn frá Jeep er að mótast sem Wrangler rafbílanna

Höf: Jóhannes Reykdal
28/06/2025
0

Breytingin í jeppaheiminum er mikil með tilkomu rafbílanna og Peter Johnson hjá electrek-vefnum í Bandaríkjunum var að birta grein um...

Kia EV3 GT-Line frumsýndur á Íslandi

Kia EV3 GT-Line frumsýndur á Íslandi

Höf: Pétur R. Pétursson
25/06/2025
0

Laugardaginn 28. júní kl. 12-16 í sýningarsal Kia að Krókhálsi 13 Við höfum beðið spennt eftir því að frumsýna loksins...

Nýr smart #5 frumsýndur á Íslandi

Nýr smart #5 frumsýndur á Íslandi

Höf: Jóhannes Reykdal
24/06/2025
0

Frumsýning laugardaginn 28. Júní kl. 12-16 í sýningarsal smart að Krókhálsi 11 Bílaumboðið Askja frumsýnir nýjan og alrafmagnaðan smart #5...

Af hverju er merkið á Audi fjórir hringir?

Af hverju er merkið á Audi fjórir hringir?

Höf: Jóhannes Reykdal
23/06/2025
0

Audi var stofnað árið 1909 en fékk ekki fjóra hringi fyrr en árið 1932. Við skoðum söguna… Ef einhver segði...

Næsta grein
Mögnuðustu húsbílar sögunnar

Mögnuðustu húsbílar sögunnar

Umræður um þessa grein

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Bílaframleiðsla

Nýi Recon-jeppinn frá Jeep er að mótast sem Wrangler rafbílanna

28/06/2025
Bílaheimurinn

Kia EV3 GT-Line frumsýndur á Íslandi

25/06/2025
Bílaframleiðsla

Nýr smart #5 frumsýndur á Íslandi

24/06/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.