Tesla safnar upplýsingum úr bílum í Kína

136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR

Tesla safnar upplýsingum úr bílum í Kína

  • Á sama tíma ræða kínverjar áhyggjur af öryggismálum

BEIJING – Bandaríski rafbílaframleiðandinn Tesla sagði á þriðjudag að þau hefðu komið sér upp gagnagrunni til að safna upplýsingum úr bifreiðum sem þau framleiða og eru notaðar í Kína. Þetta gerist á sama tíma og upplýsingasöfnun bílaframleiðenda vekur vaxandi áhyggjur meðal þeirra sem koma að verndun persónuupplýsinga. Þetta eru upplýsingar sem aflað er með myndavélum og skynjurum í bílunum.

Tesla sagði í færslu á Weibo (kínverska Facebook) að gögn úr öllum framleiddum og seldum bílum á þeirra vegum í Kína yrðu geymd í gagnagrunninum.

Tesla bætti við að það myndi áfram stækka gagnaversnet sitt í Kína. Hlutabréf í félaginu lækkuðu um 0,7% í kjölfarið.

Kína sem er stærsti bílamarkaður í heimi og sá næststærsti fyrir Tesla er að leggja drög að reglum til að tryggja öryggi gagna sem verða til vegna notkunar bifreiða sem safna upplýsingum yfir netið. Gríðarleg aukning í sölu slíkra bíla veldur mönnum áhyggjum er varða friðhelgi einkalífs og þjóðaröryggi.

Starfsfólki kínverskra ríkisfyrirtækja hefur verið sagt að leggja ekki Tesla bílum sínum í eða við stjórnarbyggingar þar sem kínversk stjórnvöld óttast öryggisbrest vegna myndavéla bílanna.

Er þetta haft eftir heimildarmönnum sem Reuters hafði á sínum snærum og hafa þekkingu á málinu.

Þetta gerist á sama tíma og einn af stjórum Tesla, Grace Tao ásamt stjórnendum hjá Baidu Inc. og Alibaba sátu ráðstefnu um gagnaöryggi á vegum kínverska tölvugeirans.

Tesla er síðan að þróa vettvang fyrir bíleigendur í Kína sem gerir þeim kleift að fá aðgang að gögnum sem ökutæki þeirra safna.

Grein byggð á Autblog

Svipaðar greinar