Hugvekja, hrollvekja eða bara skoðun blaðamanns; skiptir ekki máli hvað það heitir. Hér þarf blaðamaður að tjá sig aðeins og það er nú aldeilis vel við hæfi á sunnudegi sem þessum.
Hver einn og einasti bílaáhugamaður man án efa eftir „stóra pollamálinu“ frá liðnum vetri. Teslur sem urðu illa úti, eða eiginlega urðu þær bara úti hreint út sagt, þegar ekið var yfir polla sem einna helst minntu á meðalstórt stöðuvatn á úfnum vetrardegi.
Hefði einhver bent á þessa mögulegu hættu, að svona djúpálar í íslensku malbikslandslagi gætu hreinlega orðið nýjum Teslum að fjörtjóni, segjum svona ári áður en þetta átti sér stað, hvað þá?
Það eru töluverðar líkur á að sá hinn sami hefði verið stimplaður rafbílahatari, fordómafullur og einstrengingslegur olíubarón og allt það. Já, það eru líkur á því. Af hverju? Ég veit það ekki.

Í gær birti undirrituð stutta grein og henni fylgdu tvö myndbönd. Annað sýndi brennandi rafbíl (Teslu) og fjallaði um mann sem braut hliðarrúðu til að komast út úr bílnum. Bíllinn læstist þegar eldurinn kom upp og vissi maðurinn ekki að í slíkum neyðartilvikum væri „trix“ til að opna dyrnar: Neyðaropnun.
Hitt myndbandið sýndi „trixið“ sem er einfalt en ekki á allra vitorði. Þetta var gagnlegur greinarstúfur sem mörgum líkaði. Enda gott að vita af þessari aðferð til að komast út úr bílnum ef neyðarástand skapast og rafmagnsopnunin verður óvirk.
Áhugaverðar athugasemdir má sjá á Facebook um þessa grein. Flestir þeirra sem tjá sig eru málefnalegir en ótrúlegt en satt þá eru alltaf einhverjir sem þurfa að grýta þann sem skrifar þá grein sem er til umræðu. Endilega skjótum sendiboðann sem hefur áður sagt hluti sem einhverjir vissu fyrir. Skjótum hann svo hann hætti að bera boðin.

Það hefur loðað við umfjöllun um boðbera tíðinda (ekki endilega válegra tíðinda heldur tíðinda almennt) að þeir eru sagðir ganga erinda einhverra. Þeir séu ekki boðberar eða sendiboðar heldur útsendarar.
Ég vann á fréttastofu RÚV og þá voru „allir“ sem þar störfuðu sagðir handbendi Vinstri Grænna eða Samfylkingar. Á Morgunblaðinu voru blaðamenn sagðir sendisveinar Sjálfstæðisflokksins. Ef maður skrifar (hér) lofsamlega um nýjan rafbíl sem heitir Polestar þá er maður jú, að sjálfsögðu á launaskrá hjá Brimborg. Að mati þeirra sem geta ekki sætt sig við að blaðamenn eru ekki endilega spilltar og gráðugar skepnur sem enga hafa sómakenndina, siðferði, frjálsa hugsun og þar fram eftir götunum.
Nei, það bara getur ekki verið að maður sé að koma boðum áleiðis án þess að annarlegar hvatir búi að baki. Eða hvað?
Þegar búið er að skjóta sendiboðann og bíllinn kannski brunninn og bílstjórinn með ætlum við þá að halda áfram að kasta grjótinu úr glerhúsinu? Eða er kannski tímabært að líta á sendiboðann og hugsa með sér að hann sé nú bara ágætur inn við beinið, blessaður? Já, jafnvel nauðsynlegur!
Góðar stundir.
Umræður um þessa grein