Sunnudagur, 29. júní, 2025 @ 0:49
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Telur Musk snjallari en Einstein

Malín Brand Höf: Malín Brand
13/11/2022
Flokkar: Bílaheimurinn
Lestími: 5 mín.
270 14
0
136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Telur Musk snjallari en Einstein

„Hann er eins konar blanda af Einstein, Tesla og Rockefeller,“ sagði fyrrum mannauðsstjóri hjá SpaceX um Elon Musk, en bætti því þó við að hann væri sennilega snjallari en sjálfur Einstein.

Fyrir fáeinum vikum byrjuðu heimildaþættirnir The Elon Musk Show á BBC. Þar er rætt við starfsfólk, fjölskyldu, vini og ekki svo mikla vini Elons Musk.

Elon Musk við Teslu

Jú, mikið rétt, Elon þessi Musk er maðurinn sem við tengjum við Tesla og SpaceX. „Forstjóri Tesla“ er einn titillinn sem við getum notað, auðugasti maður veraldar er svo annað sem má nota til að greina hann frá restinni af íbúum jarðar. Ég geng nú samt út frá því að lesendur viti upp á hár hvern um ræðir og læt þessar vísanir duga.

Maye Musk, móðir Elons. Skjáskot/BBC

Þriggja ára sérfræðingur

Maye er móðir Elons og er hún lykilmanneskja þegar kemur að því að segja frá æsku hans. Elon er elsta barn hennar og verkfræðingsins Errols Musk. Nú eru þættirnir ekki aðgengilegir utan Bretaveldis, þannig að undirrituð vísar hér í stiklur (hlekkur hér neðst) sem og greinar sem birtust á vefnum Buisness Insider.

Elon 5 ára (lengst til vinstri), í miðjunni er Kimbal tæplega 4 ára og við hlið hans er systir þeirra Tosca 2 ára. Skjáskot/BBC

Móðir Elons greinir frá því að drengurinn hafi verið þriggja ára gamall þegar hún áttaði sig á að hann væri afburðagreindur. Þau voru að ræða eitthvað, mæðginin, og Elon færði rök fyrir sinni hlið mála en það er kannski ekki sjálfgefið að eiga í rökræðum við þriggja ára barn. Ekki kom fram hvort þau ræddu um undirrót efnahagsvandans eða Matchbox-bíla en það er ekki aðalatriðið.

Aðalatriðið er að móðir hans áttaði sig snemma á að Elon litli væri ekkert blávatn! Þegar hann lærði að lesa tók hann Encyclopædia Britannica fagnandi, eins og maður sem finnur vin í eyðimörk.

Ungur Elon í fangi móður sinnar. Hann er fæddur og uppalinn í Suður-Afríku en flutti 17 ára gamall til Kanada. Skjáskot/BBC

Móðir hans segir að Elon hafi beinlínis lesið allt heila klabbið en faðir hans, sem er ekki eins yfirlýsingaglaður og móðirin, segir einfaldlega að Elon hafi lesið mikið sem barn. Þá hafi hann haft sérstakan áhuga á Alexander mikla og Napóleon Bónaparte.

Snjallastur allra?

Það er sérstakt að halda því fram að einhver sé snjallastur allra og tala fjálglega um Albert Einstein (1879-1955), rétt eins og viðkomandi hafi þekkt Einstein persónulega eða hitt hann í matarboði og átt gott spjall fram eftir kvöldi.

Dolly Singh gegndi stöðu mannauðsstjóra (reyndar eitthvað miklu meira en það – ofan á bætist starfsþróunarstjóri og fleira fínt ) hjá SpaceX frá 2008 til 2013. Hún kom fram í 2. þætti af The Elon Musk Show og sagði þar meðal annars að hún teldi víst að Elon væri snjallari en Albert Einstein og að síðar meir yrði hans minnst sem eins konar blöndu af Einstein, Nikola Tesla og John D. Rockefeller.

Dolly Singh þykir Elon Musk æði snjall

„Hann hefur lesið allt sem hægt er að lesa um Tesla og Einstein. Hann er búinn að kynna sér rækilega allt sem þeir komust að og ætlar með það á næsta stig,“ eins og hún orðaði það.

Hún lét ekki þar við sitja heldur bætti við að Elon Musk væri að hennar mati sú manneskja sem næst kæmist þessum körlum af öllum núlifandi jarðarbúum.

„Hættið að vera vond við hann“

Yfirlýsingar Singh voru stórar og miklar en móðir Elons segir líka margt og mikið. Ofan á það bætist móðurleg umhyggja sem er nú dálítið krúttlegt svona á sinn hátt.

Það hafa margir skoðanir á Elon Musk en móður hans sárnar þegar fólk er vont við hann. Skjáskot/BBC

Hún sagði að hann hefði náð einstökum árangri og ætti sér ótal aðdáendur en þó „myndi enginn vilja vera hann“. Það væri ekki auðvelt að vera Elon Musk og þegar um þessi tvö fyrirtæki væri að ræða [Tesla og SpaceX – þetta var tekið upp fyrir Twitter-ævintýrið] beindist mikið hatur að stjórnanda þeirra. „Hættið að vera vond við hann,“ sagði Maye, móðir Elons Musk.

Þættirnir eru sem fyrr segir á BBC en hér má sjá stiklur úr þeim.  

Fleira tengt Elon Musk:

Bölvaður klaufi að fjárfesta ekki í Tesla

Heltekinn táningur hrellir Elon Musk

Meira af hrelli Elon Musk

Fyrri grein

Nýr Prius á leiðinni

Næsta grein

Ekið á gargönum eftir ropvatni – Laxness og bílar

Malín Brand

Malín Brand

Akstursíþrótta- og blaðamaður

Svipaðar greinar

Nýi Recon-jeppinn frá Jeep er að mótast sem Wrangler rafbílanna

Nýi Recon-jeppinn frá Jeep er að mótast sem Wrangler rafbílanna

Höf: Jóhannes Reykdal
28/06/2025
0

Breytingin í jeppaheiminum er mikil með tilkomu rafbílanna og Peter Johnson hjá electrek-vefnum í Bandaríkjunum var að birta grein um...

Kia EV3 GT-Line frumsýndur á Íslandi

Kia EV3 GT-Line frumsýndur á Íslandi

Höf: Pétur R. Pétursson
25/06/2025
0

Laugardaginn 28. júní kl. 12-16 í sýningarsal Kia að Krókhálsi 13 Við höfum beðið spennt eftir því að frumsýna loksins...

Nýr smart #5 frumsýndur á Íslandi

Nýr smart #5 frumsýndur á Íslandi

Höf: Jóhannes Reykdal
24/06/2025
0

Frumsýning laugardaginn 28. Júní kl. 12-16 í sýningarsal smart að Krókhálsi 11 Bílaumboðið Askja frumsýnir nýjan og alrafmagnaðan smart #5...

Af hverju er merkið á Audi fjórir hringir?

Af hverju er merkið á Audi fjórir hringir?

Höf: Jóhannes Reykdal
23/06/2025
0

Audi var stofnað árið 1909 en fékk ekki fjóra hringi fyrr en árið 1932. Við skoðum söguna… Ef einhver segði...

Næsta grein
Ekið á gargönum eftir ropvatni – Laxness og bílar

Ekið á gargönum eftir ropvatni - Laxness og bílar

Umræður um þessa grein

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Bílaframleiðsla

Nýi Recon-jeppinn frá Jeep er að mótast sem Wrangler rafbílanna

28/06/2025
Bílaheimurinn

Kia EV3 GT-Line frumsýndur á Íslandi

25/06/2025
Bílaframleiðsla

Nýr smart #5 frumsýndur á Íslandi

24/06/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.