Niki Lauda fallinn frá
Bílhneigðir um allan heim minnast nú Niki Lauda sem er fallinn frá, sjötugur að aldri, eftir mjög viðburðaríka ævi.

Austurríkismaðurinn Niki Lauda fæddist 1949 og var upp á sitt besta þegar Duran Duran kynslóðin var að vaxa úr grasi. Hann var samnefnari séntilmennsku og keppnismaður af lífi og sál sem sást best á því hvernig hann tæklaði alvarlegan bruna sem hann hlaut í þýska Grand Prix kappakstrinum 1976 á braut sem er mörgum Íslendingum kunnug, Nurburgring.
Hann hafði unnið heimsmeistaratitilinn árið áðir og leiddi í stigakeppninni þegar lífi hans var snúið á hvolf. Hann hlaut þriðja stigs bruna víða á líkamanum, missti eyrun og skaðaði lungun varanlega. Hann var raunar svo alvarlega slasaður að hann meðtók síðustu sakramentin og smurningu því honum var ekki hugað lífs.
Það var til marks um gríðarlegan viljastyrk að snúa aftur í kappakstur aðeins 40 dögum síðar og það er rétt hægt að ímynda sér hvort hann hafi ekki verið sárþjáður að klæða sig í keppnisgallann, og setja á sig hjálm í fyrsta skiptið eftir slysið. Eftir kappaksturinn voru sárabönd hans gegnsósa af blóði og föst við höfuðið og hann varð að rífa þau af.
Reynsla hans markaði afstöðu hans til Formúlu 1 þar sem hann beitti sér í framhaldinu fyrir bættu öryggi í kappakstri. Hann hafði raunar fyrir löngu viðrað áhyggjur sínar af öryggi í Formúlu 1. En hann átti auðveldara með að ná eyrum stjórnenda eftir að hafa skaðast sjálfur.
Lauda naut náins vinskapar við einn skrautlegasta Formúlu 1 ökumann fyrr og síðar, John Hunt en sá síðarnefndi tryggði sér sinn eina heimsmeistaratitil í Japan þegar Lauda neitaði að keyra Ferrari bíl sinn vegna ausandi rigningar.
Niki Lauda var 36 ára gamall þegar hann ætti keppni í Formúlu 1, árið 1985. Hann var þó viðloðandi Formúlu 1 áfram, 1993 sem ráðgjafi hjá Ferrari og 2001-2002 sem liðsstjóri hjá Jaguar liðinu. Hann einbeitti sér að lokum að umfjöllun um Formúlu 1 hjá RTL í Þýskalandi áður en hann hóf störf 2012 hjá Mercedes-Benz liðinu.
Niki Lauda var einnig flugmaður og stofnaði tvö flugfélög, meðal annars Lauda Air, en hann flaug farþegaflugvélum félaganna annað slagið.
Niki Lauda lætur eftir sig seinni konu sína Birgit og tvíbura sem hann eignaðist með henni, Max og Mia sem fæddust 2009, auk sonanna Mathias og Lukas frá fyrra hjónabandi með Marlene Klaus og Christoph frá þriðja sambandi sínu.