Föstudagur, 27. júní, 2025 @ 12:57
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Langdrægur Ford Mustang Mach-E rafbíll kominn í Brimborg

Pétur R. Pétursson Höf: Pétur R. Pétursson
09/06/2021
Flokkar: Bílaheimurinn
Lestími: 4 mín.
281 3
0
136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Langdrægur Ford Mustang Mach-E rafbíll kominn í Brimborg

Fyrsti Ford Mustang Mach-E rafbíllinn er lentur á Íslandi og kominn í sýningarsal Ford hjá Brimborg til sýnis og reynsluakturs.

Mjög mikill áhugi er fyrir þessum magnaða rafbíl frá Ford og Norðmenn, sem komnir eru lengst í rafbílavæðingunni, tóku vel á móti honum þegar salan hófst í maí þar í landi og settu hann beint í fyrsta sæti með tæpa 1.400 bíla selda.

Kraftmikill, fjórhjóladrifinn, langdrægur sýningarbíll hjá Brimborg

Sýningarbíllinn er búinn fjórhjóladrifi og 351 hestafla rafmótor sem skilar 660 Nm af togi og kemur bílnum í 100 km hraða á aðeins 5,1 sekúndu.

Hann er búinn 98 kWh drifrafhlöðu sem skilar honum drægni upp á 540 km og kemst því auðveldlega frá Reykjavík til Akureyrar á einni hleðslu.

Goðsögnin rafmögnuð

Það má með sanni segja að blað sé brotið í sögu Ford Mustang sem er goðsögn í bílaheiminum og hefur hingað til aðeins fengist sem tveggja dyra sportbíll. Í fyrsta skipti í 55 ára sögu þessa fræga bílamerkis er ný gerð sett á markað.

Langdrægur ferðarafbíll fyrir alla fjölskylduna í allar ferðir allt árið

Ford Mustang Mach-E er einstakur ferðarafbíll í flokki stærri bíla, rúmir 4,7 metrar að lengd og því feikilega rúmgóður fyrir fimm farþega. Farangursrými að aftan er stórt, 402 lítrar og stækkanlegt með því að fella niður aftursætisbök, að hluta eða öllu leiti.

Að auki er hann með farangursrými að framan (frunk) sem er 100 lítrar sem gefur margvíslega möguleika.

„Ford Mustang Mach-E rafbíllinn kemur á háréttum tíma fyrir orkuskiptin á Íslandi. Smellpassar við íslenskar aðstæður. Langdrægur, fjórhjóladrifinn, rúmgóður ferðarafbíll með jeppalagi og einstaklega mikla drægni á hreinu rafmagni sem kemur allri fjölskyldunni og farangri í einni lotu milli Reykjavíkur og Akureyrar sem er algengt viðmið“ segir Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar.

Allt að 610 km drægni

Ford Mustang Mach-E fæst í fjórum mismunandi gerðum og með tveimur stærðum af drifrafhlöðu fyrir mismunandi þarfir kaupenda.

Með Long Range 98 kWh drifrafhlöðu og afturdrifi er drægnin skv. WLTP staðli allt að 610 km og með fjórhjóladrifi er drægnin 540 km. Með Standard Range 75 kWh drifrafhlöðunni og afturdrifi er drægnin einnig frábær eða 440 km og 400 km þegar valið er fjórhjóladrif.

Nóg fyrir öll ferðalög og auðvitað ekkert mál í innanbæjarsnattinu.

Eldsnögg hleðsla

Rannsóknir sýna að langflestir eigendur rafbíla hlaða heima en margir einnig á vinnustað. Ford Mustang Mach-E er með 11 kW innbyggða hleðslustýringu sem gerir honum kleift að taka við þriggja fasa hleðslu (AC) hvort sem er heima eða á vinnustað. Þegar á þarf að halda er hægt að hlaða eldsnöggt í hraðhleðslu.

Long Range útfærslan með 98kWh drifrafhlöðunni getur nýtt sér allt að 150 kW hraðhleðslustöð (DC) og hlaðið frá 10% í 80% á aðeins 45 mínútum. Standard Range 75 kWh útfærsluna er hægt að hlaða frá 10% í 80% á 38 mínútum í allt að 115 kW hraðhleðslustöð.

Hlaðinn þægindabúnaði sem m.a. tryggir alltaf heitan bíl

Ford Mustang Mach-E er hlaðinn staðalbúnaði. Framrúða og hliðarspeglar eru upphituð og farþegarými er alltaf heitt með aðstoð forhitara með tímastilli auk þess sem stýri er upphitað og leðurklætt og fjölstillanleg, framsætin eru upphituð. Hljómtækin eru frá B&O með 10 hátölurum, þráðlaus hleðsla fyrir farsíma, stór 15,5″ snertiskjár, nálægðarskynjarar, lyklalaust aðgengi, Ford pass og sjálfvirk netuppfærsla hugbúnaðar (OTA) svo fátt eitt sé upptalið.

Mustang Mach-E með Evrópubúnaði og lengri verksmiðjuábyrgð

Ford Mustang Mach-E bílar sem keyptir eru hjá Brimborg eru sérhannaðir fyrir Evrópu með búnaði og gerðaviðurkenningu fyrir Evrópu og uppfylla þannig allar skráningarkröfur á því markaðssvæði.

Fjöðrun, stýri og driflína eru aðlöguð að evrópskum aðstæðum. Búnaður er m.a. miðaður við kalt loftslag og drægni miðast við evrópskar WLTP reglur. Leiðsögukerfi með Íslandskorti fylgir Evrópubílum ásamt hleðslukapli með TYPE2 tengi fyrir evrópskar aðstæður.

5 ára verksmiðjuábyrgð er á Ford Mustang Mach-E bílum og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu sem keyptir eru hjá Brimborg.

Til sölu núna á netinu á frábæru verði

Ford Mustang Mach-E kostar frá 6.890.000 kr. og er nú þegar til sölu á netinu í Vefsýningarsal Brimborgar.

Fyrri grein

Nýr Opel Astra „sést“ í fyrsta sinn

Næsta grein

Hyundai kynnir nýjan og langdrægari KONA EV

Pétur R. Pétursson

Pétur R. Pétursson

Vefstjóri og blaðamaður

Svipaðar greinar

Kia EV3 GT-Line frumsýndur á Íslandi

Kia EV3 GT-Line frumsýndur á Íslandi

Höf: Pétur R. Pétursson
25/06/2025
0

Laugardaginn 28. júní kl. 12-16 í sýningarsal Kia að Krókhálsi 13 Við höfum beðið spennt eftir því að frumsýna loksins...

Nýr smart #5 frumsýndur á Íslandi

Nýr smart #5 frumsýndur á Íslandi

Höf: Jóhannes Reykdal
24/06/2025
0

Frumsýning laugardaginn 28. Júní kl. 12-16 í sýningarsal smart að Krókhálsi 11 Bílaumboðið Askja frumsýnir nýjan og alrafmagnaðan smart #5...

Af hverju er merkið á Audi fjórir hringir?

Af hverju er merkið á Audi fjórir hringir?

Höf: Jóhannes Reykdal
23/06/2025
0

Audi var stofnað árið 1909 en fékk ekki fjóra hringi fyrr en árið 1932. Við skoðum söguna… Ef einhver segði...

Nýr Land Rover Defender Trophy Edition mun gera það gott í eyðimörkinni

Nýr Land Rover Defender Trophy Edition mun gera það gott í eyðimörkinni

Höf: Jóhannes Reykdal
22/06/2025
0

Land Rover Defender Trophy Edition mun líklega finna heimili á bílastæðinu við knattspyrnuvöllinn, en hann gæti líka gert það í...

Næsta grein
Hyundai kynnir nýjan og langdrægari KONA EV

Hyundai kynnir nýjan og langdrægari KONA EV

Umræður um þessa grein

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Bílaheimurinn

Kia EV3 GT-Line frumsýndur á Íslandi

25/06/2025
Bílaframleiðsla

Nýr smart #5 frumsýndur á Íslandi

24/06/2025
Bílaframleiðsla

Af hverju er merkið á Audi fjórir hringir?

23/06/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.