Langar þig í frábæran rafsportbíl?

136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR

Langar þig í frábæran rafsportbíl?

Formáli

Flest þekkjum við sögur af fólki sem hefur skarað fram úr í vísindum, viðskiptum, tækni o.s.frv.. Þetta er oft fólk sem maður les oftast um í sögubókum.

Sumt af þeim á það sammerkt að vera engir afburðanemendur í skóla en blómstra þegar þau fara að gera hluti sem þau hafa óbrennandi áhuga á.

Það væri hægt að nefna nokkur nöfn á slíku fólki sem er frægt og lifandi núna en ég ætla ekki að gera það hér. Oftar en ekki eru þetta karakterar sem eru ekki eins og fólk er flest.

Sá sem fjallað verður um hér er enginn annar en Mate Rimac! Hvað meinarðu með því að þú hafir aldrei heyrt á hann minnst?

Reyndar vissi ég ekkert um þennan mann fyrr en nýlega þannig að ég get lítið sagt.

Í stuttu máli er hann margverðlaunaður uppfinningamaður og frumkvöðull sem hefur einnig hlotið margar viðurkenningar m.a. valinn einn af 30 bestu frumkvöðlum undir þrítugu árið 2017 af Forbes Magazine.

Mjög viðkunnanlegur maður sem er ekkkert að trana sér fram en lætur frekar verkin tala.

Hver er maðurinn?

En reynum aðeins að fræðast um þennan unga Króatíska ríkisborgara. Hann fæddist 12. febrúar 1988  í Bosníu og Hersegóvínu sem þá var í Júgóslavíu.

Fjölskyldan flutti til Þýskalands 1991 þegar stríðið braust út. Fjölskyldan flutti svo til Króatíu árið 2000.

Hinn ungi Mate var enginn afburðanemandi í skóla en undi sér vel einn í bílskúr fjölskyldunnar en þar vann hann að eigin verkefnum sem áttu öll það sameiginlegt að vera á tölvutækni-, rafmagns- eða rafeindasviði. Þegar hann var orðinn aðeins eldri var hann hvattur af prófessor sínum til að taka þátt í keppni sem hann vann honum sjálfum til hinnar mestu furðu.

En þar fann hann bragðið af velgengni og árangri, fékk sjálfstraust og þá varð ekki aftur snúið.

Þegar Mate Rimac var 18 ára árið 2006, keypti hann 1984 árgerð af BMW E30 323i til að keppa í kappakstri enda hafði hann alla tíð verið heillaður af bílum og langaði að keppa. Þetta þótti honum vera einfaldasta og ódýrasta leiðin fyrir sig til að láta drauminn rætast. En eftir að bensínvélin sprakk þá ákvað hann að breyta bílnum í rafbíl innblásinn af uppfinningum Nikola Tesla sem var og er átrúnaðargoðið hans.

Keppinautar hans gerðu grín að honum fyrir að mæta með „Þvottavél“ á keppnisbrautina. En stundum hlær sá best sem síðast hlær.

Eftir uppfærslur og endurbætur með hlutum sem hann smíðaði sjálfur varð bíllinn hraðskreiðari og fór að vinna keppnir. Sem náttúrulega vakti athygli á honum og rafbílum.

Bílinn setti mörg FIA og Guinness heimsmet. Mate ákveður í kjölfarið að stofna fyrirtæki sem hann kallaði VST Conversions (v=s/t er formúlan eða jafnan fyrir hraða) en það breytti hefðbundnum bílum í rafbíla.

Rimac Automobili stofnað

Árið 2009 í september þegar Mate var 21 árs gamall stofnar hann Rimac Automobili á grunni VST.

Þetta var ströggl til að byrja með en það gekk illa að fá fjárfesta og fyrirtækið var ekki með neina starfsmenn fyrr en 2011. 2020 voru starsmennirnir orðnir yfir 900 og fyrirtækið hefur laðað að stóra fjárfesta eins og Porsche, Hyundai-Kia og Camel Group sem er einn af stærstu rafgeymaframleiðendum í Asíu.

Það er almenn vitneskja að fyrirtækið er að vinna með eða er að framleiða hluti fyrir Porsche, Hyundai, Kia, Renault, Jaguar, Aston Martin, SEAT, Koenigsegg og Automobili Pininfarina. Þetta er ekki endilega tæmandi listi því Rimac gæti verið að vinna bak við tjöldin með fleiri fyrirtækjum.

Það er skýrt af hálfu Mate Rimac að hluthafar geta ekki sett sig í forgang eða tafið eða stöðvað samstarfsverkefni keppinauta þeirra sem fyrirtækið vinnur með. Sem sagt þú ert hluthafi og þú skiptir þér ekkert af rekstrinum!

Fyrirtækið er enn að stækka og er áætlunin að það fari úr því að framleiða lítið magn af hátæknibúnaði í að geta framleitt íhluti í miklu magni fyrir bílaiðnaðinn.

Raf-ofursportbílar

Hér kemur það sem ég er spenntastur fyrir.

Árið 2010 kynntist Rimac Adriano Mudri sem þá var hönnuður hjá General Motors. Rimac lagði til við Mudri að þeir skyldu hanna saman rafmagns ofurbíl. Þeir ákváðu að gera það og byrjuðu á að koma hugmyndum á blað. Á þessum tíma var Rimac háskólanemi en Mudri var enn í vinnu hjá GM þannig að þeir báðir unnu að verkefninu um nætur og um helgar – Rimac sá um tæknihliðina en Mudri sá um hönnunina.

Til að afla fyrirtækinu tekna neyddist Mate Rimac til að taka að sér verkefni fyrir önnur bílafyrirtæki en þau voru t.d. hönnun rafgeyma, rafmagns aflrásir og jafnvel heilu bílana. En á sama tíma var verið að hanna og smíða sportbíla sem hlutu nafnið Rimac Concept_One.

Það tókst þó að frumsýna Concept_One árið 2011 á Frankfurt Motor Show. Eftir alls konar erfiðleika og úrtölur. Rimac og Mudri hafa starfað saman síðan þá og Mudri er nú stjórnandi hönnunar.

Næst til umfjöllunar er aðalhlutverk Rimac Automobili fyrirtækisins en það er framleiðsla rafofursportbíla. Concept_One var bara forsmekkurinn.

2018 kynnti fyrirtækið áætlun sína um að smíða Rimac C_Two. Markmiðið er að sá bíll standi jafnfætis og jafnvel verði betri á sumum sviðum en fremstu sportbílar nútímans.

Þetta tryllitæki verður búið fjórum vökvakældum rafmótorum þ.e. einn fyrir hvert hjól. Það er reiknað með að hámarkshraðinn verði um 415 km/klst og hröðun frá kyrrstöðu í 60 mílur/klst (97 km/klst) verði 1,85 sekúndur. Ætli hann verði þá ekki undir 2 sekúndum í hundraðið?

Hámarskdrægni er áætluð 647 km á NEDC og því er haldið fram að sé bíllinn keyrður tvo heila hringi á Nürburgring þá hafi það sáralítil áhrif á aflið.  

C_Two er með tækni sem gerir honum kleift að vera 4. stigs sjálfkeyrandi bíll. Þessi bíll er hlaðinn tækni sem er hönnuð og smíðuð innan fyrirtækisins.

Endanleg útgáfa af C_Two verður afhjúpuð, tilbúin til framleiðslu og afhendingar síðar á þessu ári. En hann verður líklega 1.888 hestöfl (1.408 kW ) eða 1.914 PS og mun kosta 1,7 milljónir evra.

Þetta er mjög spennandi sportbíll.

Leggið inn pantanir núna því bíllinn verður framleiddur í takmörkuðu upplagi!

Skoðið svo endilega þetta myndband.

Greyp Bikes

Þú hélst að þú værir sloppinn, lesandi góður, er það ekki? Ekki aldeilis því það er aðeins meira sem ég vil segja þér.

Mate Rimac stofnaði systurfélag við Rimac Automobili sem heitir Greyp Bikes árið 2015 og framleiðir rafhjól.

Markmiðið er að framleiða háafkasta rafmagns reiðhjól sem Mate Rimac „ætlar að nota til að breyta heiminum“. Vonandi til hins betra.

Central Intelligence Module (tölva giska ég á) og eSim (fjarskiptabúnaður eða netkort líklega) gera hjólinu kleift að vera sítengt ásamt viðeigandi forriti eða appi gerir leiðsögn og gagna greiningu mögulega ásamt því að fylgst er með heilsu eða hreysti hjólreiðamannsins.

Vörulínur sem eru núna í boði innihalda meðal annars G6 fjallahjól en vöruúrvalið mun aukast og þá bætast við vörulínurnar eTrekking hjól og eCity hjól.

Eftir að hafa talið í veskinu sýnist mér að ég hafi kannski efni á því að kaupa Greyp rafhjól.

Svipaðar greinar