Innsendar myndir frá Úkraínu
Einn af lesendum Bílabloggsins Hafliði Birgir Ísólfsson sendi okkur myndir af gömlum bílum í Úkraínu sem urðu á vegi hans þar.
Hafliði segist „búinn að sjá flest allar gerðir af gömlum og nýjum bílum“ þar. En það sem náttúrulega vekur mesta athygli eru bílarnir sem eru öðruvísi en það sem við sjáum venjulega.
„Gömlu bílarnir eru allir rússneskir og misfallegir en eiga allir það sameiginlegt að rúlla af gömlum vana“ segir Hafliði.
Hér koma myndirnar og það væri gaman ef lesendur gætu nefnt bíltegundir, árgerðina og fleiri upplýsingar um þá. Eins konar Páskaleikur en verðlaunin eru bara montrétturinn fyrir þá sem vita eða giska á allt rétt.









Við svindlum þó aðeins því bíltegundin sem sést á síðustu 4 myndunum er skv. Hafliða og lesa má á bílnum:
„Tavria Nova, svolítið skrýtinn sambræðingur.
Mér finnst framendinn líkjast Renault Fuego og afturendinn minnir á Lada Samara sem búið er að stytta, ég er ekki viss um árgerð.“ Hver er árgerðin, veit einhver það?
Lesendum er alltaf velkomið að senda okkur myndefni og óska eftir umfjöllun um hvaðeina sem varðar bíla og það verður nær örugglega birt.
Ísólfur fær lokaorðið: „Eitt eiga Úkraínumenn og Íslendingar sameiginlegt: umferðarmenningin er á frekar lágu plani og ég fékk að kynnast því, ég og konan fórum með bíl frá Íslandi og hingað fyrir dóttur hennar, sá bíll er núna á Úkraínskum númerum.“
Gleðilega Páska!