Gleðilegt nýtt ár!

136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR

Gleðilegt nýtt ár!

Við hjá Bílabloggi óskum lesendum okkar gleðilegs árs og takk fyrir allar heimsóknirnar á árinu sem var að kveðja.

Bílablogg er ekki gamall vefur en hefur náð að vaxa og dafna vel, sérstaklega vegna áhuga ykkar lesendur góðir á því efni sem við höfum haft fram að færa.

Á þeim stutta tíma sem við höfum starfað höfum við fært ykkur 3281 frétt í 11 fréttaflokkum og reynsluekið 152 mismunandi bílum.

152 þúsund gestir og tæp hálf milljón smella

Á árinu sem var að kveðja fengum við alls um 152.000 gesti á vefinn og „smellir“ á vefinn voru tæp hálf milljón á árinu – nokkuð sem við getum verið ánægð með – og örugglega auglýsendur á vefnum líka.

Við stefnu ótrauð áfram á þessu ári og munum færa ykkur fréttir af því sem er að gerast í bílaheiminum hverju sinni, og jafnvel brydda upp á ýmsu nýju.

Nýtt vefumhverfi

Á næstu dögum mun vefurinn síðan birtast í nýju „vefumhverfi“ sem mun gera hann enn læsilegri en áður, betra verður að skoða efnisflokka og fylgjast með fréttum.

Svipaðar greinar