Geggjaðir glæsivagnar á uppboði
Í rúm 50 ár hafa áhugasamir bílaunnendur flykkst á Barrett-Jackson bílauppboðin. Barrett-Jackson er einn stærsti og þekktasti uppboðsaðili fyrir bíla sem safngripi.
Í ár fór uppboðið fram í Scottsdale Arizona sem varð þannig vettvangur þar sem sjá mátti nokkra af flottustu bílum veraldar ef svo má að orði komast.

5 milljónir dollara til góðgerðarmála
Söluandvirði bílanna rennur óskipt til góðgerðarmála. Um 500 þúsund manns fylgdust með uppboðinu og heildarsöluandvirði bíla á uppboðinu í ár var um 5 milljónir dollara.

Rafgmangs Hummerinn stal senunni
Allir bílarnir sem boðnir voru upp seldust fyrir sex stafa tölur en sigurvegarinn, sá sem halaði stærstu fjárhæðina inn var hinn glænýi Hummer árgerð 2022, rafbíll en hann fór á 2,5 milljónir dollara.

Nýi Broncoinn stóð sig einnig vel og fór á rúma milljón dollara.
Þessir seldust á neðangreindar upphæðir:
- GMC Hummer EV: 2,500,000 dollara
- Ford Bronco: 1,075,000 dollara
- Ford Mustang Mach 1: 500,000 dollara
- Ram 1500 TRX Launch Edition: 410,000 dollara
- Cadillac CT5-V Blackwing: 265,000 dollara
- Cadillac CT4-V Blackwing: 165,000 dollara



Gamlir og góðir en rándýrir
Þrátt fyrir að Hummerinn hefði farið á 2,5 milljónir dollara var hann ekki dýrasti bíllinn á svæðinu.

Heiðurinn af þeirri nafnbót á Shelby Cobra 427 Super Snake árgerð 1966 sem eitt sinn var í eigu hins eina sanna Carroll Shelby. Hann fór á 5,5 milljónir dollara, sömu upphæð og hann seldist á árið 2007.
Annar bíll sem fór á nærri því sömu upphæð og Hummerinn var uppgerður Ferrari 275 GTB/4 árgerð 1967 en hann fór á rétt tæpar 2,5 milljónir dollara.
Svona á að safna fé til góðgerðarmála!



