Forkynning á næstu kynslóð Mitsubishi Outlander sportjeppans
- Fjórða kynslóð Mitsubishi Outlander mun verða frumsýnd í febrúar á næsta ári, en alls óvíst á hvaða mörkuðum bílinn verði markaðssettur
Við höfum verið að flytja fréttir af Mitsubishi Outlander, að hann sé að hætta á Evrópumarkaði, og nýr arftaki, Eclipse Cross, muni koma í staðinn. En á sama tíma er Mitsubishi að „forkynna“ næstu kynslóð af Outlander.
Næsta útgáfa af þessum sívinsæla sportjeppa japanska vörumerkisins mun fara í sölu snemma árið 2021 í Bandaríkjunum, Kanada og Púertó Ríkó, en eftir að Mitsubishi ákvað nýverið að draga sig út af markaði í Evrópu, eða hið minnsta að minnka viðveru sína þar, er en óvissa á hvaða mörkuðum bíllinn muni birtast.

Sem dæmi má nefna að SsangYong á Englandi er nú að ræða möguleika á að starfa sem innflytjandi fyrir Mitsubishi, sem myndi veita Bretum aðgang að nýja Outlander til skamms tíma – en enn á eftir að ganga frá samningnum.
Þegar nýja gerðin verður kynnt opinberlega mun hún vera með nýja hönnun og tengitvinndriftækni með nýrri rafhlöðu- og rafmótortækni.
Hönnun nýja Mitsubishi Outlander er sögð ótrúlega lík Engelberg Tourer hugmyndabílnum frá bílasýningunni í Genf árið 2019. Hönnunin deilir sömu kassalegu hlutföllum, flatri vélarhlíf, háum dagljósum og C-laga grillinnskotum. Framendinn ber einnig nýjustu túlkunina á hönnun á grilli vörumerkisins.
Enn eftir að sjá opinberar myndir af innanrýminu í nýjum Outlander, en þegar miðað er við njósnamyndir sem hafa sést á bílavefsíðum bendir allt til þess að næsti bíll fái nýtt upplýsingakerfi í uppfærðri hönnun. Skipt verður um miðjusettan skjá gamla bílsins með nýrri einingu. Gæði innanrýmis ættu einnig að batna miðað við fráfarandi gerð.
Mitsubishi hefur gefið út litlar opinberar upplýsingar um aflrás nýja Outlander – en vitað er að sportjeppinn verður ekki fáanlegur með tengitvinnafli. Í upphafi verður bíllinn líklega aðeins boðin með úrvali bensín- og dísilvéla.
Mitsubishi hefur þegar staðfest að PHEV Outlander mun ekki fara í sölu fyrr en árið 2022 – og þó að fyrirtækið eigi enn eftir að negla neinar upplýsingar um aflrás nýju gerðarinnar, reiknum við með að það verði endurskoðuð útgáfa af núverandi kerfi bílsins eins og forsýnd af Engelberg Tourer hugmyndabílnum í Genf.
Sýningarbíllinn í Genf á sínum tíma var með uppfærða útgáfu af 2,4 lítra fjögurra strokka bensínvél Mitsubishi, par af rafmótorum og stærri rafhlöðupakka en núverandi 20 kWst eining í Outlander. Hvað varðar tölur varðandi afl og frammistöðu er enn all óstaðfest, þó Mitsubishi staðfesti að kerfið hefur aksturssvið samkvæmt WLTP sem mun verða um 70 kílómetrar.
(byggt á frétt á Auto Express og fleiri vefsíðum)



