Fólk, flugvélar, bílar og traktorar á Tungubökkum

140
DEILINGAR
1.3k
SMELLIR

Fólk, flugvélar, bílar og traktorar á Tungubökkum

Fornvélasýningin Wings´n Wheels fór fram á Tungubökkum í tíunda skiptið í gær, laugardaginn 27. ágúst 2022 frá 12-17.

Skemmtileg sýning fyrir alla þá sem hafa gaman af að sjá flottar græjur, fornar sem nýjar. Gamlar flugvélar, gamlar dráttavélar, gamlir bílar, gömul mótorhjól og margt annað skemmtilegt.

Buick Roadmaster frá árinu 1957 og Mercedes Benz 180 frá 1959

Ýmis spennandi sýningaratriði voru í gangi, svo sem listflug, Karamellukast fyrir börnin klukkan 16:30 og fleira.

Þessi árlegi viðburður sem er hluti af dagskrá bæjarhátíðarinnar „Í túninu heima“ í Mosfellsbæ er haldin af Flugklúbbi Mosfellsbæjar í samstarfi við Fergusonfélagið á Íslandi, Fornbílaklúbb Íslands og bæjarhátíð Mosfellsbæjar.

Hér að neðan má sjá nokkrar svipmyndir frá hátíðinni laugardaginn 27. ágúst:

TF-KRI Glasair Sportsman GS-2
TF-ÖGN er fyrsta flugvélin sem var hönnuð og smíðuð á Íslandi. „Smiðirnir Gunnar Jónasson og Björn Olsen hófu verkið árið 1931,“ segir á vef Stálflex.  Einnig má lesa um þessa merku vél hér.
Glæsilegir forsetabílar: Cadillac Fleetwood frá árinu 1982 og Packard V8, árgerð 1942
Lincoln Continental frá árinu 1972
Jaguar XJS frá árinu 1990 og Ford Galaxy frá 1963
Chevrolet Bel Air frá 1956
TF-TUG  PA-25-235 frá 1966
TF-OLD Stampe SV4C frá árinu 1946
Ljósmyndir: Jóhannes Reykdal
Myndatexti: Malín Brand

Svipaðar greinar