Miðvikudagur, 18. júní, 2025 @ 12:30
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

BMW-eigandi syrgir brunahreyfilinn

Malín Brand Höf: Malín Brand
20/12/2021
Flokkar: Bílaheimurinn
Lestími: 3 mín.
276 8
0
136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

„Fregnir af andláti brunahreyfilsins eru stórlega ýktar.“ Með þessari skírskotun í fleyg orð sem Mark nokkur Twain lét falla um „eigið andlát“, hefst grein á BMWblog sem birt var í morgun.

Vill greinarhöfundur með því benda á að brunahreyfillinn sé ekki á förum alveg strax, heldur sé staðreyndin sú að sífellt séu reglur um útblásturgildi hertar og fer það stöðugt lækkandi, eins og flestir ættu að vita.

Þetta, segir greinarhöfundurinn, Adrian Padenau, „hefur neytt bílaframleiðendur til þess að setja sótsíur [e. Particulate filters] í bíla,“ alla vega í sumum heimshlutum. „Það hefur spillt þeirri fögru músík sem almennileg bensínvél gefur frá sér.“

Skjáskot/YouTube

Hvað með þessi fögru hljóð?

Hann segir enn fremur að eftir því sem rafvæðingin festist betur í sessi, komi óhjákvæmilega að því „að gullaldarskeiði brunahreyfilsins ljúki,“ skrifar hann eins og syrgjandi skáld. Jú, fyrr eða síðar gerist það.

„Það verður mikill sorgardagur þegar að því kemur. Þangað til verða gerðar kröfur um að minna heyrist í sportbílum,“ uns þeir þagna algjörlega og halda hljóðlaust inn í rafbílaskeiðið.

Nú var það þýðandi sem gerðist ögn skáldlegur. En jæja, áfram heldur greinin á BMWblog og kemur næst inn á að sumir myndu óhikað halda því fram að forþjappan hafi þegar dregið úr hinu töfrandi hljóði, þeirri fögru tónlist sem brunahreyfillinn gefur annars frá sér þegar hann fær að anda óhindrað.

Þessar vangaveltur höfundar urðu til þess að ákveðið myndband rifjaðist upp fyrir honum:

„Myndband sem tekið var í Hollandi rigningardag nokkurn, þegar BMW-eigendur komu saman. Var samkoman tileinkuð M-útgáfum. Menn létu leiðinlegt veðrið ekkert á sig fá heldur komu þeir saman og sýndu stoltir dýrgripina sína, þar á meðal M6 Coupe E36, með sinn magnaða V10 mótor sem hljómaði svo dásamlega. Það þýðir ekki að hljóðið í nýrri bílum sé eitthvað lélegt, en það er bara eitthvað æðislegt við þennan óhindraða og kraftmikla vélargný,“ skrifar hann.

Padenau, þessi sem greinina ritaði, tekur fram að smekkur manna sé vissulega misjafn og hefur nokkuð mörg orð um mismunandi hljóm í hinum og þessum BMW-inum. Þetta má allt lesa hér en svona í lokin þá má ég til með að birta myndbandið sem hann vísar til í greininni. Nú er mikilvægt að hljóðið sé á lesendur góðir, annars er þetta allt til einskis!

Ætli það megi ekki segja að þetta sé óður til brunahreyfilsins sem greinarhöfundur er, meðvitað eður ei, þegar farinn að syrgja?

Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.

Fyrri grein

Ferskur blær á íslenskum bílamarkaði

Næsta grein

Hraðskreiðasti api sögunnar

Malín Brand

Malín Brand

Akstursíþrótta- og blaðamaður

Svipaðar greinar

Apple CarPlay fær mikla, notendavænni uppfærslu og með sérstillingum

Apple CarPlay fær mikla, notendavænni uppfærslu og með sérstillingum

Höf: Jóhannes Reykdal
17/06/2025
0

Breytingar verða gerðar sem hluti af iOS 26 hugbúnaðaruppfærslunni fyrir iPhone, sem kemur út í haust Apple CarPlay mun fá...

Toyota segir að nýi Aygo X tvinnbíllinn verði hreinasti bíll Evrópu án tengils

Toyota segir að nýi Aygo X tvinnbíllinn verði hreinasti bíll Evrópu án tengils

Höf: Jóhannes Reykdal
11/06/2025
0

BRUSSEL — Toyota segir að nýi smábíllinn Aygo X, sem er full-tvinnbíll, sé hreinasti bíll Evrópu sem þarf ekki að...

Verksmiðjur í Evrópu loka vegna skorts á sjaldgæfum jarðefnum

Verksmiðjur í Evrópu loka vegna skorts á sjaldgæfum jarðefnum

Höf: Jóhannes Reykdal
08/06/2025
0

Reuters News - BERLÍN — Nokkrum evrópskum varahlutaverksmiðjum og framleiðslulínum hefur verið lokað vegna skorts á sjaldgæfum jarðefnum af völdum...

Afmælissýning Kvartmíluklúbbsins og Krúser – myndir

Afmælissýning Kvartmíluklúbbsins og Krúser – myndir

Höf: Pétur R. Pétursson
04/06/2025
0

Kvartmíluklúbburinn – 50 ára afmæli Kvartmíluklúbburinn, stofnaður árið 1975, hefur verið í fararbroddi íslensks mótorsports í hálfa öld. Klúbburinn rekur...

Næsta grein
Hraðskreiðasti api sögunnar

Hraðskreiðasti api sögunnar

Umræður um þessa grein

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Bílaframleiðsla

Apple CarPlay fær mikla, notendavænni uppfærslu og með sérstillingum

17/06/2025
Bílaframleiðsla

Toyota segir að nýi Aygo X tvinnbíllinn verði hreinasti bíll Evrópu án tengils

11/06/2025
Bílaframleiðsla

Verksmiðjur í Evrópu loka vegna skorts á sjaldgæfum jarðefnum

08/06/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.