Ford Bronco kom fyrst á markað árið 1966 og fagnar því 60 ára afmæli í ár! Af því tilefni var Brimborg með sérstaka afmælissýningu í höfuðstöðvum sínum á Bíldshöfða 6.
Ford Bronco er einn ástsælasti jeppi Íslands og á sér langa og merkilega sögu. Til sýnis voru margir glæsilegir Ford Bronco bílar sem spanna sögu Bronco frá upphafi og það var greinilegt að meirihluta gestanna voru á því aldursskeiði að þeir þekktu vel til þessara bíla og þarna heyrðust margar sögur í þeim dúr.
Umsjónarmaður Bílabloggs var svo heppinn að eignast einn af þaim bílum sem komu í fyrstu sendingunni til Kr. Kristjánssonar af árgerð 1966 og sá bíll þjónaði mér vel í tíu ár og þá tók 1974 árgerðin við, sjálfskiptur og með V8 vél.
Brimborg á heiður skilið fyrir að hafa efnt til þessarar sýningar og gefa okkur kost á að rifja upp sögu þessa notadrjúga jeppa sem svo sannarlega sameinaði alla helstu kosti jeppa og fólksbíls sínum tíma.














