Mikill áhugi gesta þegar ÍSBAND frumsýndi B05 og B03X frá Leapmotor

136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR

Laugardaginn 29. ágúst var haldin “bæjarhátíðin í Túninu heima” í Mosfellsbænum og þá frumsýndi ÍSBAND umboðsaðili LEAPMOTOR á Íslandi, tvo nýja og glæsilega 100% rafknúna bíla frá LEAPMOTOR.

Það var stöðugur straumur gesta sem koma að skoða þessa nýju bíla og greinilegt að þeir kunnu vel að meta að Ísband getur í dag boðið upp á svona breiða línu rafbíla.

B03X er framdrifinn með svipaðri hönnun og jepplingur, þægilegur í akstri og auðvelt að leggja honum í stæði. 5 metra beygjuradíus gerir akstur í borginni einfaldari og áhyggjulausan. B03X er með auðveldu aðgengi með hárri sætisstöðu. Flatt gólf, sveigjanleg sætaskipan, mörg geymsluhólf og flatt farangursrými tryggja hámarksnytsemi í daglegri notkun.

B03X er einn ódýrasti rafbíll landsins í sínum stærðarflokki.  Hann er sérlega rúmgóður,  vel útbúinn og fáanlegur í tveimur útfærslum.  Life sem er með 39,8 kWh rafhlöðu og drægni upp á 292 km samkvæmt WLTP.  Design útfærslan er með 53 kWh rafhlöðu og drægni upp á 382 km samkvæmt WLTP.

LEAPMOTOR fjölskyldan er ört stækkandi og telur nú fimm bíla. Smábílinn T03, þá B03X jepplinginn, miðstærðarbílana B05 og B10 og svo flaggskipið C10 AWD. Flestir ættu að finna rafmagnsbíl við sitt hæfi í fjölbreyttu vöruvali LEAPMOTOR.

Hinn bíllinn sem var frumsýndur í dag er B05 sem er á einstöku verði, er rúmgóður,  vel útbúinn og fáanlegur í tveimur útfærslum.  Life sem er með 56,2 kWh rafhlöðu og drægni upp á 401 km samkvæmt WLTP.  Design útfærslan er með 67,1 kWh rafhlöðu og drægni upp á 482 km samkvæmt WLTP. 

Hér eru nokkar svipmyndir frá frumsýningunni í Mosfellsbænum í dag.

Svipaðar greinar