Rafstýrð hurðaopnun brást í banaslysi

146
DEILINGAR
1.3k
SMELLIR

Kínversk yfirvöld segja að rafstýrð hurðaopnun í bíl með innfelldum hurðarhúnum hafi átt þátt í banaslysi í Chengdu í fyrra. Málið kemur upp á sama tíma og Kína undirbýr bann við slíkri hönnun en menn hafa áhyggjur af þessar þróun hvað öryggi varðar.

Rafstýrðir, innfeldir hurðarhúnar hafa verið mikið í umræðunni undanfarið eftir að Kína samþykkti nýlega reglugerð sem bannar slíkar lausnir af öryggisástæðum.

Nú hefur opinber rannsókn á banaslysi í Xiaomi rafbíl í borginni Chengdu varpað ljósi á ástæðuna fyrir þessu.

Í skýrslunni kemur fram að rafstýrð hurðaropnun hafi brugðist eftir árekstur – sem varð til þess að ökumaðurinn gat ekki komist út úr bílnum.

Eldur kom upp eftir árekstur

Slysið átti sér stað 13. október 2025 þegar Xiaomi SU7 rafbíll lenti í óhappi í Chengdu.

Eftir áreksturinn kviknaði í bílnum og ökumaðurinn, 31 árs gamall maður að nafni Deng samkvæmt Car News China, sat fastur inni í bílnum, sem stóð í ljósum logum.

Samkvæmt opinberri skýrslu yfirvalda var bíllinn á um 167 km/klst (104 mph) þegar slysið varð. Einnig kemur fram að ökumaðurinn hafi verið undir áhrifum áfengis.

Myndbönd frá vettvangi sýna vegfarendur reyna að bjarga manninum. Þeir reyndu bæði að toga upp rafopnanlega hurð SU7 en hurðarhúnar eru innfelldir í hurð bílsins. Einnig reyndu aðilar að brjóta rúður bílsins.

Talið er að hurðaropnunin hafi misst rafmagn þegar eldurinn kviknaði, og þar sem engin vélræn neyðaropnun var aðgengileg utan frá á bílnum, tókst ekki að opna hurðina. Ökumaðurinn lést því inni í bílnum.

Ekki fyrsta slysið af þessu tagi

Innfelldir hurðarhúnar – hvort sem þeir eru svipaðir eins og í SU7 eða skjótast út úr hurðinni eins og í Tesla og mörgum öðrum nýjum bílum – hafa orðið sífellt algengari í bílaiðnaðinum undanfarin ár.

Ástæðan er bæði hreinni hönnun og betri loftmótstaða, sem skiptir miklu máli fyrir rafbíla þar sem minni loftmótstaða getur aukið drægni.

Öryggissérfræðingar hafa þó lengi varað við lausnum sem treysta alfarið á rafmagn til að opna hurðir.

Í skýrslu Bloomberg frá síðasta ári kom fram að að minnsta kosti 15 banaslys tengd Tesla-bílum hafi átt sér stað þar sem rafstýrð hurðaopnun virkaði ekki eftir árekstur eða eld.

Kína bannar innfelda hurðaopnun

Fyrr í þessum mánuði varð Kína fyrsta ríkið til að grípa til lagalegra aðgerða gegn þessari hönnun.

Ný lög banna innfelda hurðarhúna og taka gildi fyrir nýjar bílagerðir frá og með 1. janúar 2027.

Samkvæmt reglunum verða allir bílar að hafa:

  • vélræna hurðaropnun bæði innan frá og utan frá
  • aðgengilega neyðaropnun jafnvel ef rafkerfi bílsins bilar
  • hálf-infelldar lausnir verða þó áfram leyfðar, en þá þarf innfelldi gripflöturinn að vera að minnsta kosti 6,1 × 2 cm (2,4 × 0,8 tommur).

Gæti haft áhrif á allan heim

Þótt Kína sé fyrsta landið til að banna þessa umdeildu hönnun gætu áhrif laganna orðið alþjóðleg.

Margir rafbílar frá öðrum löndum eru seldir í Kína og kínverskir bílar verða sífellt algengari á alþjóðamörkuðum.

Þegar jafn skýr dæmi um öryggisáhættu liggja fyrir – eins og í þessu slysi með Xiaomi SU7 – telja margir að önnur lönd gætu fljótlega fylgt fordæmi Kína.

Byggt á grein af Autoblog

Svipaðar greinar