2025 Ram 1500 REV er flottur raf-pallbíll
Fyrstu myndir af 2025 Ram 1500 REV leiða í ljós að rafbíllinn líkist meira núverandi Ram
Svo virðist sem megnið af byltingunni sé undir yfirborðinu
Við sögðum frá því fyrir nokkrum dögum að nýr rafdrifinn pallbíll frá RAM væri orðinn staðreynd, en gátum þá ekki sýnt nema merkið, en núna eru strax komnar myndir af bílnum sem sýna vel að þetta verður virkilega flottur rafdrifinn pallbíll.

Og þessar fyrstu myndir sýna vel að það eru augljósar vísbendingar um hönnun byggðar á Revolution hugmyndabílnum, en það eru talsverð áhrif á þeim nýja sem flutt eru beint frá Ram 1500 sem við þekkjum í dag.
Nýtt útlit – bara að hluta
Já, „Revolution“ hugmyndabíllinn lagði til alveg nýtt ytra byrði með flottum línum og gríðarstóru stýrishúsi sem hægt er að kreista inn þriðju sætaröðina.

En framleiðsluútgáfa REV tekur aðeins til hönnunar að framan og aftan en einnig felgurnar.

Hann er því með flottu LED-framljósin í grilllausum framenda og afturljósin ná inn á afturhlerann.
En að mestu leyti er þetta eins og núverandi bíll.

Jafnvel eina innlitið í innréttinguna sýnir að þar er allt í grundvallaratriðum það sama og í núverandi, en hugsanlega með uppfærðum miðskjá og skjá fyrir framan farþegana.
Ekki er komin nein mynd af opinni vélarhlíf á, þó línurnar sem ná inn í framhliðina bendi til þess að það sé líklega framskott eins og á hugmyndabílnum og keppinautunum, F-150 Lightning og Silverado EV.
Einnig, með hefðbundnu stýrishúsi og yfirbyggingu, má gera ráð fyrir að miðjuopnunin frá „hugmyndabílnum „Revolution Concept sé ekki að ná í framleiðslu.
Niðurstöðurnar eru samt vissulega aðlaðandi, að minnsta kosti í augum þeirra hjá Autoblog, og við getum alveg tekið undir það.
En það er eitt og annað sem ekki er enn ljóst eftir að hafa séð þennan nýja pallbíl. Hann gæti alveg verið að fá nýja STLA Frame undirvagninn og augljóslega rafdrifna aflrás, það bara liggur ekki fyrir á þessari stundu.
Eða eins og Autoblog segir: „Þetta er að miklu leyti stefna Ford F-150 Lightning (sem okkur líkar mjög vel við) að sameina þekkingu og framsýni, frekar en róttækari nálgun Chevrolet“.
Framleiðsla á bílnum hefst á næsta ári og afhendingar hefjast í lok árs 2024.
(frétt á vef Autoblog)



