BMW 2000CS er hluti af „Neue Klasse“ línunni frá BMW og var framleiddur frá árinu 1965 til 1969. Þetta var stílhreinn og sportlegur tveggja dyra coupé sem var forveri hinna ofur flottu BMW-lúxus sportbíla eins og E9-línunnar (2800CS, 3.0CS, o.fl.).

Þetta eru helstu upplýsingar í tölum
- Framleiðsluár: 1965–1969
- Vél: 2.0 lítra, 4 strokka, SOHC
- Afl: 120 hestöfl (í 2000CS útgáfunni)
- Gírkassi: 4 gíra beinskipting eða 3 gíra sjálfskipting
- Drif: Afturhjóladrif
- Þyngd: Um 1.150 kg
- Hröðun (0-100 km/klst): Um 10 sekúndur
- Hámarkshraði: Um 185 km/klst

Flott ítölsk áhrif
BMW 2000CS var hannaður af Wilhelm Hofmeister og línur hans ávalar mjög. Takið eftir stórri framrúðunni. Sérstakt útlit í heild sinni á þessum bíl.









Þetta var einn af fyrstu BMW-bílunum með nýstárlega grillhönnun sem varð síðar einkennismerki BMW. Hann var búinn sportlegum mælum og lúxusinnréttingu.

Átti að slá í gegn
BMW 2000CS var mikilvægur bíll í þróun BMW coupé-línunnar. Þetta var einn af síðustu bílunum með M10 fjögurra strokka vélinni áður en BMW fór að nota stærri sex strokka vélar í lúxus- og sportbílum sínum.










Karmann sá um að smíða og setja saman yfirbygginguna fyrir BMW 2000CS, rétt eins og þeir gerðu síðar fyrir BMW E9 (2800CS, 3.0CS, 3.0CSL).
Yfirbyggingin var handsmíðuð að miklu leyti og Karmann vann með stálið og setti saman alla helstu hluta bílsins áður en þeir voru sendir til BMW í München.
BMW sá síðan um lokafrágang, ísetningu vélar, rafbúnaðar og innréttinga í München.

Bíllinn var byggður á Neue Klasse undirvagninum frá BMW, sem einnig var notaður í BMW 1800 og 2000 sedan-bílunum.
CS2000 var búinn 2.0L fjögurra strokka M10-vél sem var þróuð sérstaklega fyrir Neue Klasse línuna. Þetta var ein af síðustu vélunum af gerðinni M10 sem fór í sportbíl hjá BMW.

Innréttingin var háklassa með viðarklæðningu og vönduðum áklæðum eða leðri, eftir óskum kaupenda.
Af hverju Karmann?
BMW hafði ekki alla innviði til að byggja sportbílayfirbyggingar í stórum stíl á þessum tíma, svo þeir leituðu til Karmann, sem var sérhæft í framleiðslu á flóknum og boddíum. Þetta samstarf hélt áfram með E9 Coupé-línunni (t.d. BMW 3.0CS og CSL) og fleiri klassískum BMW-módelum.

Sjaldgæfur bíll
Aðeins um 11.720 eintök voru framleidd og er BMW 2000CS því afar sjaldgæfur í dag. Verð á vel varðveittum eintökum getur verið 30.000 – 70.000 evrur, allt eftir ástandi.
Þetta eintak
Hraðskreiðasta útgáfan var 2000 CS, með tveimur karboratorum gáfu um 120 hestöfl. Þetta voru reyndar mjög dýrir bílar og framleiddir í takmörkuðu magni. Það eru því ekkert mjög margir bílar þessarar gerðar til í góðu ástandi í dag. Þessi hefur verið gerður upp frá toppi til dekkja.

Af ofangreindum ástæðum er Neue Klasse 2000 CS mjög eftirsóttur í dag og vinsæll safngripur.

Bíllinn á myndunum hefur verið gerður upp af alúð og natni og gerir hann því afar sérstakan. Að utan lítur bíllinn sérlega vel út og ekki sér mikið á lakkinu frá uppgerð. Kílómetrarnir aðeins rétt um 77 þús. Að innan má sjá eldrauð leðursæti og viðarklæðning, líklega úr hnotuð tónar við leðrið á sætum.
Verðið er ásett 21.500 EUR.
Umræður um þessa grein