Færri fá Land Rover Defender tengitvinnbílinn en vilja
- Jaguar Land Rover á í erfiðleikum með að anna eftirspurn eftir nýjum Defender í tengitvinngerð
- Biðlistinn eftir bílnum nær næstum 100.000 bílum þar sem evrópskir kaupendur vilja rafmagnaðar gerðir með lága losun CO2
Nick Gibbs hjá Automotve News Europe fræðir okkur á því að Jaguar Land Rover situr uppi með pöntunarlista upp á tæplega 100.000 ökutæki. Fyrirtækið berst við að anna eftirspurn eftir nýjum Land Rover Defender jeppa vegna skorts á örflögum.
Biðlistinn eftir nokkrum tengitvinnsgerðum nálgast 12 mánuði, sagði Adrian Mardell, fjármálastjóri Jaguar Land Rover, við fjárfesta á þriðjudag þegar fyrirtækið tilkynnti nýjustu ársfjórðungslegu afkomu sína.
„Þetta er afleiðing vandamála varðandi framboð“, sagði Mardell og vitnaði í skort á hálfleiðara og örflögum og vandamál varðandi framleiðslu á tengitvinnbílum. „Búast við að pöntunarbækurnar verði eðlilegar eftir sex, níu eða tólf mánuði,“ sagði hann.
Flestar pantanirnar á biðlistanum eru frá meginlandi Evrópu og heimamarkaði fyrirtækisins í Bretlandi, sagði Mardell.
Thierry Bollore, forstjóri JLR, sagði að fyrirtækið missti 7.000 einingar í framleiðslu vegna hálfleiðaraskorts á síðasta ársfjórðungi fyrirtækisins sem lauk 30. mars.
Fyrirtækið gaf engar upplýsingar um hvernig skorturinn hefði áhrif á framleiðslu næsta fjárhagsárs.
Mardell sagði: „Við munum ekki enn þekkja umfang áhrifa frá hálfleiðaraskortinum“. Biðlistinn á Defender er nú yfir 20.000 bílar, sagði hann. Sala á ökutækinu nálgast 7.000 á mánuði, samanborið við 5.000 sem spáð var, sagði hann fjárfestum. Listinn yfir panatanir þegar Defender fór fyrst í sölu í apríl í fyrra stóð í kringum 8.000, samkvæmt tölum JLR. Fyrirtækið seldi 45.244 eintök af Defender á fjárhagsárinu.
Mikil eftirspurn eftir tengitvinnbílum
Pantanir á tengitvinnbílum frá JLR hafa sérstaklega aukist þar sem viðskiptavinir í Evrópu leitast við að nýta sér lægri skattaáhrif vegna minni losunar koltvísýrings í akstri.
„Það er sérstök áhersla á tengitvinnbíla. Þeir hafa haft mikil áhrif á markað okkar“, sagði Mardell. „Sumir þeirra eru með 12 mánaða biðlista svo greinilega að þeir viðskiptavinir verða að vera mjög þolinmóðir við okkur.“
Mardell tjáðis eig ekki nánar varðandi vandanálin í framleiðslu tengitvinnbíla en fyrirtækið gerði hlé á sölu Range Rover Evoque og Land Rover Discovery Sport P300e tengitvinngerðanna í október síðastliðnum vegna vanda vegna yfirlýstu CO2 í útblæstri þeirra.
Sala á tengitvinngerðum náði 7,3 prósentum af heildarsölu JLR á heimsvísu á ársfjórðungnum samanborið við 4,6 prósent fyrir allt fjárhagsár fyrirtækisins. Sala á rafknúna Jaguar I-Pace nam 1,8 prósentum af sölu á fjórðungnum.
Tap á fullu ári
Jaguar Land Rover tapaði 861 milljón punda á fjárhagsárinu sem lauk 30. mars eftir að hafa afskrifað 952 milljónir punda ($ 1,2 milljarða) vegna niðurfellingar á stórum hluta af „Modular Longitudinal Architecture“ og annarrar 571 milljón punda endurskipulagningarkostnaðar.
Án afskrifta var framlegð JLR á EBIT um 2,6 prósent á árinu.
Fyrirtækið hefur dregið úr metnaði sínum varðandi magn undir stjórn nýs forstjóra, Thierry Bollore, þar á meðal að breyta Jaguar í vörumerki rafbíla frá árinu 2025 og hætta við markmið um eina milljón bíla á ári.
(Automotive News Europe)
Umræður um þessa grein