Toyota afhjúpar Copen GR Sport sem spennandi opinn lítinn sportbíl
Copen GR er sportbíll frá dótturfyrirtækinu Daihatsu.
Þessi litli tveggja sæta sportbíll, smíðaður samkvæmt japanskri tæknilýsingu „kei bíls“, fær fjölda af uppfærslum í útliti og á undirvagni til að búa til bíl sem myndar upphafspunkt í vaxandi úrvali af gerðarmódelum Toyota í heimi sportbílanna.
Breytingar Toyota á þessum sportbíl dótturfyrirtækisins Daihatsu eru aðallega varðandi upplifun í akstri í brennidepli, ásamt framenda og aðlagaðri hönnun á miðju sem eykur stífni bílsins í akstri. Því er haldið fram að fjöðrunarbreytingar, þ.mt endursvörun fjöðrunar og sérsniðnir höggdeyfar, nái jafnvægi milli mýktar og grips.
Rafknúið stýrikerfi Copen hefur verið fínstillt fyrir aukna virkni og því er haldið fram að það bæti viðbragð og auðveldi notkun bílsins að fullu í öllu umhverfi.
Hönnunaratriði fela í sér meira áberandi stuðara að framan, hönnun á grilli er innblásin af öðrum Toyota GR gerðum og nýjum BBS sportlegum álfelgum.
Að innan er sætum Daihatu skipt út fyrir sportlegri Recaro-sæti en hraðamælirinn og snúningshraðamælir eru endurhannaðir til að styrkja sporlegt útlit bílsins. Það eru átta litavalkostir að utan en innréttingu Copen GR Sports er aðeins hægt að fá í svörtu.
Þriggja strokka 660cc túrbóvél Copen er enn til staðar og sendir afl til framhjóla í gegnum fimm gíra handskiptan eða sjö gíra CVT gírkassa.
Bíllinn er sem stendur ekki tiltækur utan Japans og innanlandsverð byrjar frá 2.380.000 jenum, jafnvirði um það bil 2.735.096 íslenskra króna.
Umræður um þessa grein